Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2026 08:22 Á myndbandi má sjá að Daníel Berg og Braga sinnaðist eftir leikinn á Ísafirði um helgina. Skjáskot/Handboltapassinn Handknattleiksdeild Stjörnunnar sakar þjálfara Harðar á Ísafirði um að hafa veist að þjálfara Stjörnunnar og haft í hótunum við hann, í leik í 3. flokki karla á Ísafirði um helgina.
Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvikið og hefur vísað málinu til HSÍ. Uppfært kl. 10:05: Hörður hefur svarað ásökunum Stjörnunnar og segir Garðbæinga segja ósatt frá. Hörður hafi einnig vísað hegðun þjálfara Stjörnunnar til HSÍ. Samkvæmt frétt Handkastsins var það Bragi Rúnar Axelsson, starfsmaður Harðar, sem veittist að Daníel Berg Grétarssyni, þjálfara Stjörnunnar. Miðillinn segist hafa heimildir fyrir því að Bragi hafi hótað Daníel og fjölskyldumeðlimum lífláti. Á myndbandi frá lokum leiksins má sjá þegar Daníel gengur til Braga og réttir fram höndina. Bragi tekur í höndina en grípur líka um öxl Daníels og virðist svo ýta höndinni í andlit Daníels. Þeim var þá stíað í sundur en þeir létu einhver orð falla. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bragi kemst í fréttirnar fyrir óæskilega hegðun. Fyrir ári var hann úrskurðaður í þriggja leikja bann eftir að hafa misst stjórn á sér á leik Harðar við ÍBV 2 í Powerade-bikarnum í Vestmannaeyjum. Þar kastaði Bragi stól inn á völlinn í átt að leikmönnum Eyjaliðsins eftir leik. Tilkynningu Stjörnunnar vegna atviksins á Ísafirði um helgina má lesa í heild hér að neðan. Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvik sem varð síðastliðna helgi í leik Harðar og Stjörnunnar í 3. flokki karla á Ísafirði, þar sem þjálfari Harðar veittist að þjálfara Stjörnunnar og hafði í frammi hótunum við hann. Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar áréttar að þjálfarar og annað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar skuli ávallt sýna gott fordæmi í samskiptum, hvort sem er utan vallar eða innan. Málinu verður vísað til HSÍ til þóknanlegrar meðferðar.
Handbolti Hörður Stjarnan Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira