Ferguson: Örlögin eru í okkar höndum 7. apríl 2007 14:30 Alex Ferguson er mjög ánægður með hvernig lið sitt hefur verið að spila í vetur. MYND/Getty
Alex Ferguson var á heimspekilegu nótunum á blaðamannafundi fyrir leik Man. Utd. og Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í dag og sagði að örlög liðsins í ár væru í höndum síns og leikmanna liðsins. Ferguson fullyrðir að ef leikmenn náði að forðast það að fara á taugum á lokasprettinum sé meistaratitilinn þeirra. “Baráttan er í okkar höndum núna. Við verðum að halda haus og passa að fara ekki á taugum,” sagði Ferguson, en þegar sjö leikir eru eftir af deildarkeppninni hefur Man. Utd. sex stiga forystu á Chelsea í toppbaráttunni. “Liðið hefur verið í frábæru formi og mér líður eins og við getum farið hvert sem er og náð góðum úrslitum,” sagði Ferguson, en Man. Utd. heimsækir Portsmouth í síðasta leik dagsins í úrvalsdeildinni. Talið er að skoski stjórinn muni stilla upp óbreyttu byrjunarliði frá því í tapleiknum gegn Roma í Meistaradeildinni á miðvikudag. Hann er ekki á því að refsa Paul Scholes fyrir að láta reka sig klaufalega af velli gegn Roma með því að taka hann úr liðinu. “Því fer fjarri að ég telji að Scholes hafi brugðist liðinu á miðvikudag. Hann vann leikinn fyrir okkur gegn Blackburn í deildinni um síðustu helgi með frábærri frammistöðu. Paul er gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir okkar lið og ég ætla ekki að segja honum að hætta að tækla,” sagði Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Króatía - England | Er enska liðið búið að finna taktinn? Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira