Rasmussen verður næsti framkvæmdastjóri NATO 4. apríl 2009 13:30
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, verður næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Hollendingurinn Jaap de Hoop Scheffer, sem lætur af embætti í sumar, staðfesti þetta á blaðamannafundi með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og Angelu Merkel kanslara Þýskalands eftir hádegi í dag. Framkvæmdastjórinn fráfarandi vildi ekki upplýsa hvers vegna Tyrkir hefðu látið af andstöðu sinni við skipan Fogh Rasmussen í embættið en Frakklandsforseti lagði áherslu á að þetta hefði verið einróma ákvörðun leiðtoga NATO ríkjanna. Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Frakklandi og Þýskalandi lauk fyrir sundu og var stefnt að því að arftaki de Hoop Scheffer yrði valinn á fundinum. Tyrkir voru andsnúnir því að danski forsætisráðherrann tæki við vegna þess að þeir töldu hann ekki hafa tekið af nægilega mikilli festu á skopteikningamálinu þegar danska blaðið Jótlandspósturinn birti umdeildar skopmyndir af Múhameð spámanni 2006. Auk þess eru Tyrkir ósáttir við að dönsk yfirvöld hafi ekki lokað sjónvarpsstöð Kúrda í Danmörku. Sú stöð mun rekin af Verkamannaflokki Kúrdistans, PKK, sem Tyrkir, fjölmörg Evrópuríki og Bandaríkjamenn skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Þau berjast fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda. Fogh Rasmussen naut stuðnings helstu Evrópuvelda og Bandaríkjanna í embættið og var mikið búið að þrýsta á Tyrki að láta af andstöðu sinni við skipan hans. Rasmussen verður fyrsti Norðurlandabúinn til að gegna stöðunni.
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Erlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Innlent Fleiri fréttir Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Sjá meira