Mancini: Lærið að vinna án Carlos Tevez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2010 11:15 Carlos Tevez fagnar sigurmarki sínu á móti Bolton. Mynd/AP
Carlos Tevez verður í leikbanni um helgina þegar Manchester City mætir hans gamla félagi West Ham og það gæti skapað vandræði fyrir City-liðið enda hefur Tevez verið allt í öllu í sóknarleik liðsins. Roberto Mancini, stjóri Manchester City, veit vel af þessarri umræðu og hefur nú skorað á sína leikmenn að sanna það að þeir treysti ekki bara á litla Argentínumanninn sinn sem hefur komið með beinum hætti af 14 af 21 marki liðsins í ensku úrvalsdeildinni (10 mörk og 4 stoðsendingar). „Þetta er tíminn þar sem við verðum að vinna án Carlos. Hann er frábær leikmaður og einn af þeim mikilvægustu í heimi. Hann er því mjög mikilvægur fyrir okkur en það er nauðsynlegt fyrir okkur að aðrir leikmenn stígi fram og taki meiri ábyrgð," sagði Roberto Mancini. Manchester City hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu þar sem Carlos Tevez hefur ekki verið meðal markaskorara en það var í 2-0 sigri á West Bromwich Albion.Carlos Tevez.Mynd/AP„Við verðum að bæta okkur og það er því mikilvægt að við förum að skora mörk í gegnum aðra leikmenn eins og Mario [Balotelli], Yaya [Touré], Jô og [Adam] Johnson. Við verðum að læra að vinna án Carlos Tevez," sagði Mancini. „Carlos skapar alltaf mikla hættu í vítateig andstæðinganna en ef við höldum áfram að spila fótbolta eins og á móti Bolton Wanderers þá getum við unnið án hans," sagði „Þetta verður erfiður leikur á laugardaginn því ég tel að West Ham eigi ekki skilið að vera í botnsætinu. Þeir eru með góða leikmenn og góðan stjóra þannig að þetta er undarlega staða sem þeir eru í. Við fengum viðvörun þegar þeir unnu Manchester United í deildarbikarnum en þeir hafa annars spilað vel undanfarinn mánuð. Við þurfum að spila mjög vel ef að við ætlum að vinna á Upton Park," sagði Mancini.
Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Fótbolti Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Handbolti Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Körfubolti Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Fótbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Fleiri fréttir Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti