Fótbolti

Ragnar og félagar fara til Istanbul en Manchester United hafði heppnina með sér

Fred og félagar í Manchester United geta verið ánægðir með dráttinn í dag.
Fred og félagar í Manchester United geta verið ánægðir með dráttinn í dag. Getty/James Williamson

Manchester United menn höfðu heppnina með sér þegar dregið var í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í dag.

Mancheter United mætir austurríska félaginu LASK sem heitir fullu nafni Linzer Athletik-Sport-Klub. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Manchester United hefur heppnina með sér í drætti.

Ragnar Sigurðsson og félagar í FC Kaupmannahöfn slógu Celtic út í 32 liða úrslitunum og drógust á móti Istanbul Basaksehir frá Tyrklandi.

Arsenal-banarnir í Olympiakos mæta öðru ensku úrvalsdeildarfélagi því þeir drógust á móti Úlfunum.

Það eru líka nokkrir flottir aðrir leikir því Sevilla dróst á móti Roma, Internazionale mætir spænska félaginu Getafe og Rangers spilar við Bayer Leverkusen.



Leikirnir í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar:

Istanbul Basaksehir - FC Kaupmannahöfn

Olympiakos - Wolves

Rangers - Bayer Leverkusen

Wolfsburg - Shakhtar Donetsk

Internazionale Milan - Getafe

Sevilla - Roma

Red Bull Salzburg eða Eintracht Frankfurt - Basel

LASK - Manchester United

Klippa: Evrópudeildin: Dregið í 16 liða úrslit



Fleiri fréttir

Sjá meira


×