Brian Kidd líkir Mancini við Sir Alex Ferguson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2010 08:00 Roberto Mancini stjóri Manchester City. Mynd/AP
Brian Kidd, aðstoðarmaður Roberto Mancini hjá Manchester City, ætti að þekkja muninn á stjórum Manchester-liðanna betur en flestir enda búinn að vinna með þeim báðum. Kidd var fulltrúi Manchester City í viðtölum við fjölmiðla eftir 3-1 sigur liðsins á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í gær og þar líkti hann Roberto Mancini við Sir Alex Ferguson, stjóra Manchester United. „Ég sé sömu löngun, sama metnað og sömu ástríðu hjá Roberto og ég sá hjá Alex Ferguson þegar ég vann með honum á sínum tíma," sagði Brian Kidd en United vann marga titla á árunum 1991 til 1998 þegar hann var aðstoðarmaður Sir Alex. „Ég hef verið þess heiðurs aðnjótandi að vinna með honum á æfingavellum og þar sem hann leggur ómælanlega vinnu í taktík og skipulag liðsins. Það er gaman að sjá hann uppskera eftir þá miklu vinnu," sagði Kidd. „Ég sé allt til alls hjá Roberto til þess að ná góðum árangri. Hann hefur öll einkenni sigurvegara. Hann tekur eftir öllum smáatriðum og leggur mikið á sig enda sættir hann sig aldrei við að vera númer tvö," sagði Kidd. „Hann svekkir sig á öllum mistökum og hann er frábær stjóri. Manchester City ætti að fagna því að hafa hann sem stjóra," sagði Kidd.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira