Farið að minna á Rooney-farsann - City hafnar beiðni Tevez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2010 12:00 Carlos Tevez.M Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester City hefur hafnað beiðni Carlos Tevez um að vera seldur frá félaginu og hafa forráðamenn félagsins lýst yfir vonbrigðum með fyrirliðann sinn sem hefur slegið í gegn hjá stuðningsmönnum félagsins á þeim átján mánuðum sem liðnir eru síðan að hann kom frá Manchester United. „Það okkur mikil vonbrigði að tilkynna stuðningsmönnum okkar það að Carlos Tevez hefur sent inn formlega beiðni um að vera seldur. Félagið getur jafmframt staðfest að beiðninni hefur verið hafnað. Félagið er mjög ósátt við að þessi staða sé komin upp og þá er sérstakega mikil óánægja með fulltrúa Tevez í þessu máli," sagði í tilkynningu frá Manchester City. „Roberto Mancini og allir hjá City hafa sýnt fjölskylduaðstæðum Carlos mikinn skilning þar sem að fjölskylda hans býr erlendis. Eftir að ljóst var að Tevez væri í banni í leiknum um helgina þá fékk hann leyfi til þess að fara heim," segir í tilkynningunni en tvö börn Tevez búa í Argentínu. Carlos Tevez.Mynd/Nordic Photos/Getty„Umrædd félagaskiptabeiðni er í algjörri andstöðu við það sem Carlos hefur sagt bæði í fjölmiðlum sem og í viðtölum við menn hjá félaginu. Félagið hefur einnig fengið margar beiðnir frá umboðsmanni Tevez um að gera nýjan og betri samning við leikmanninn og nú síðast um að framlengja samninginn um eitt ár. Það er hinsvegar ekki venja fyrir því hjá félaginu að ræða samningamál við leikmenn á miðju tímabili," sagði í tilkynningunni. „Þetta er slæm og óvelkomin staða og mikil truflun fyrir liðið. Félagið ætlar engu að síður að einbeita sér að leikjum liðsins sem eru framundan enda er mjög spennandi tímabil framundan. Dyrnar eru samt áfram opnar fyrir Carlos í komandi leikjum," segir í tilkynningu Manchester City Football Club. Það má lesa á milli línannna að umboðsmaður Carlos Tevez sé hér að skapa öll þessi vandræði og þetta er strax farið á minna á farsann á dögunum í kringum Wayne Rooney og framtíð hans hjá Manchester United. Líkt og með Rooney er Carlos Tevez stærsta stjarna Manchester City liðsins og öllum hjá félaginu því mikið áfall að hann vilji fara.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira