Erlent

Staðráðnir í því að ná Ungdómshúsinu

Ungdómshúsið við jagtvej Mótmælendur hafa boðað frekari aðgerðir næstu daga og ætla sér að ná húsinu aftur á sitt vald.
Ungdómshúsið við jagtvej Mótmælendur hafa boðað frekari aðgerðir næstu daga og ætla sér að ná húsinu aftur á sitt vald. DNY/PELLE

Mótmælendur í Kaupmannahöfn létu til skarar skríða á ný í gærkvöldi, daginn eftir að lögreglan hafði rýmt Ungdómshúsið á Norðurbrú, sem áratugum saman hefur verið vinsæll samkomustaður unga fólksins í Kaupmannahöfn.

Mikil átök urðu þar í fyrrakvöld og var búist við að hamagangurinn yrði ekki minni í gærkvöldi. Mótmælendur voru staðráðnir í að ná húsinu aftur á sitt vald.

„Það er samt búið að vera mjög rólegt hérna í dag, en ég hugsa að það sé lognið á undan storminum,“ sagði Guðrún Ísaksdóttir hárgreiðslukona í Kaupmannahöfn þegar Fréttablaðið náði tali af henni síðdegis í gær. Guðrún starfar ásamt fjórum öðrum Íslendingum á hárgreiðslustofunni Street Cut við Nørrebrogade, sem er skammt frá Ungdómshúsinu á Jagtvej 69 sem lætin snúast öll um.

„Við erum í miðri baráttunni. Það var bál hérna fyrir utan í gærkvöldi,“ segir Guðrún. „Það var leitað á einum fyrir framan gluggann hjá okkur. Hann var með mótmælaspjald grey maðurinn og var bara tekinn og þreifaður upp og niður.“

Annars hafði starfsfólkið á hárgreiðslustofunni lítið orðið vart við átökin, hvorki á fimmtudaginn né í gær: „Við lokum klukkan fjögur, en klukkan fimm hófust mótmælin og þá varð allt vitlaust.“

Í gærmorgun hófust aðgerðir á því að nokkrir mótmælendur lögðu undir sig höfuðstöðvar Sósíaldemókrataflokksins í Kaupmannahöfn. Tveimur tímum síðar yfirgáfu þeir flokksskrifstofurnar friðsamlega.

Lítið bar síðan til tíðinda fyrr en undir kvöldið þegar mótmælendur söfnuðust saman klukkan 19 í Folkets Park. Klukkan 22 hófst síðan fjöldaganga frá Gamlatorgi á Strikinu með lifandi tónlist og var haldið þaðan í áttina að Norðurbrú, aðalvettvangi átakanna. Loks var planið að safnast saman við Sankt Hans Torv á miðnætti og fylgja þaðan „græna fánanum“ á vit frekari aðgerða, eins og það var orðað á heimasíðu mótmælenda.

„Annars er merkilegt að yfirleitt í kringum þessa stóru götubardaga gengur lífið hérna sinn vanagang,“ sagði Jón Runólfsson, forstöðumaður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, sem hafði fylgst grannt með fréttum af atburðunum þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær. „Maður getur jafnvel séð konu á hjóli fara sína leið í gegnum mannfjöldann eða einhver með barnavagn. Það er mjög danskt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×