Staðráðnir í því að ná Ungdómshúsinu 3. mars 2007 05:45 Ungdómshúsið við jagtvej Mótmælendur hafa boðað frekari aðgerðir næstu daga og ætla sér að ná húsinu aftur á sitt vald. DNY/PELLE
Mótmælendur í Kaupmannahöfn létu til skarar skríða á ný í gærkvöldi, daginn eftir að lögreglan hafði rýmt Ungdómshúsið á Norðurbrú, sem áratugum saman hefur verið vinsæll samkomustaður unga fólksins í Kaupmannahöfn. Mikil átök urðu þar í fyrrakvöld og var búist við að hamagangurinn yrði ekki minni í gærkvöldi. Mótmælendur voru staðráðnir í að ná húsinu aftur á sitt vald. „Það er samt búið að vera mjög rólegt hérna í dag, en ég hugsa að það sé lognið á undan storminum,“ sagði Guðrún Ísaksdóttir hárgreiðslukona í Kaupmannahöfn þegar Fréttablaðið náði tali af henni síðdegis í gær. Guðrún starfar ásamt fjórum öðrum Íslendingum á hárgreiðslustofunni Street Cut við Nørrebrogade, sem er skammt frá Ungdómshúsinu á Jagtvej 69 sem lætin snúast öll um. „Við erum í miðri baráttunni. Það var bál hérna fyrir utan í gærkvöldi,“ segir Guðrún. „Það var leitað á einum fyrir framan gluggann hjá okkur. Hann var með mótmælaspjald grey maðurinn og var bara tekinn og þreifaður upp og niður.“ Annars hafði starfsfólkið á hárgreiðslustofunni lítið orðið vart við átökin, hvorki á fimmtudaginn né í gær: „Við lokum klukkan fjögur, en klukkan fimm hófust mótmælin og þá varð allt vitlaust.“ Í gærmorgun hófust aðgerðir á því að nokkrir mótmælendur lögðu undir sig höfuðstöðvar Sósíaldemókrataflokksins í Kaupmannahöfn. Tveimur tímum síðar yfirgáfu þeir flokksskrifstofurnar friðsamlega. Lítið bar síðan til tíðinda fyrr en undir kvöldið þegar mótmælendur söfnuðust saman klukkan 19 í Folkets Park. Klukkan 22 hófst síðan fjöldaganga frá Gamlatorgi á Strikinu með lifandi tónlist og var haldið þaðan í áttina að Norðurbrú, aðalvettvangi átakanna. Loks var planið að safnast saman við Sankt Hans Torv á miðnætti og fylgja þaðan „græna fánanum“ á vit frekari aðgerða, eins og það var orðað á heimasíðu mótmælenda. „Annars er merkilegt að yfirleitt í kringum þessa stóru götubardaga gengur lífið hérna sinn vanagang,“ sagði Jón Runólfsson, forstöðumaður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, sem hafði fylgst grannt með fréttum af atburðunum þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær. „Maður getur jafnvel séð konu á hjóli fara sína leið í gegnum mannfjöldann eða einhver með barnavagn. Það er mjög danskt.“
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Erlent „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Innlent Fleiri fréttir Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Sjá meira