Hrottalegt dýraofbeldi í sjónvarpsauglýsingu 3. júní 2011 15:03
Áströlsku grasrótarsamtökin GetUp! vinna nú hörðum höndum að því að koma átakanlegri auglýsingu í sjónvarpið þar sem sjá má hrottalega meðferð á dýrum sem flutt eru frá Ástralíu til Indónesíu. Rúmlega tvö hundruð þúsund Ástralir rituðu nafn sitt á undirskriftalista sem afhentur var á ástralska þinginu í gær en undirskriftunum var safnað á aðeins tveimur dögum. Sjónvarpsauglýsingunni er beint til Juliu Gillard, forsætisráðherra landsins, og undir vægast sagt erfiðum myndbrotum er hún beðin að binda enda á ofbeldið með því að banna útflutning á lifandi búfénaði þar í landi. Takist samtökunum að safna nægu fé í tæka tíð, mun auglýsingin birtast á Sky News sjónvarpsstöðinni þar í landi á morgun; bæði á meðan að á Opna franska tennismótinu stendur og í miðjum kvikmyndasýningum kvöldsins. Haft var eftir Mary Jo Fisher, þingmanni íhaldsmanna, að að hennar mati myndi bann á útflutningi á búfénaði aðeins koma niður á áströlskum bændum en lítið gera til að stöðva ofbeldið sem ætti sér stað í Indónesíu. Dýraunnendur sem heimtuðu slíkt bann væru velviljaðir en illa upplýstir. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá auglýsinguna sem um ræðir, en vert er að hafa í huga að hún sýnir afar illa meðferð á dýrum, og er alls ekki fyrir viðkvæmar sálir. Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu samtakanna http://www.getup.org.au/
Mest lesið Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Innlent Útiloka ekki að beita hernum í Grænlandi Erlent Mikill viðbúnaður á Kringlumýrarbraut Innlent Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Innlent Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Innlent Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Innlent Segir skynsamlegt að anda með nefinu varðandi Grænland Innlent Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Innlent Zo-On fær ekki krónu: Kveikt á rafsuðutæki þegar eldurinn kviknaði Innlent „Það er öllu stjórnað með ógn þarna“ Innlent Fleiri fréttir Útiloka ekki að beita hernum í Grænlandi „Stórt framfaraskref“ Óska eftir fundi með Rubio Kaffilaus fundur í gluggalausu herbergi „Ég ætla ekki að segja hættum við kosningarnar“ Nýtti sér leik sinn í Dansar við úlfa við að mynda sértrúarsöfnuð Hafa birt innan við prósent af Epstein-skjölunum Walz hættir við framboð vegna árása Trump-liða Sænskur ráðherra hlutgerður á miðli Musk Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Svissneski skemmtistaðurinn ekki skoðaður í fimm ár Kristrún, Witkoff og Kushner á fundinum í París í dag Huldumaður hagnaðist verulega á árásinni á Venesúela Fyrrverandi fjármálaráðherra Kanada verður ráðgjafi Selenskí Var með fleiri en fimmtíu hunda á heimilinu Segir þörf á samtali um „meintan“ yfirráðarétt Dana „Ég er forseti sem hefur verið rænt; stríðsfangi!“ Fækkar ráðlögðum bóluefnum „Ég er ekki í pólitík til að gera fólk glatt“ „Einhver verður að gera eitthvað til að stoppa manninn af“ Hæddist að vörnum Dana á Grænlandi: „Þeir bættu við einum hundasleða“ Upphaf langra málaferla Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Fjallaljón banaði konu eftir að ráðist var á mann Maduro verður leiddur fyrir dómara síðdegis Rétta yfir löggu fyrir aðgerðaleysi á meðan börn og kennarar voru myrt Tíu sakfelld fyrir að halda því fram að forsetafrúin sé trans Reyna að koma sextán skipum gegnum herkví Rannsaka klámmyndir spjallmennis Musk af táningum Aðgerðasinnar tóku rafmagnið af Berlín Sjá meira