Hull sótti stig á Anfield 13. desember 2008 17:06 Kraftaverkalið Hull heldur áfram að koma á óvart NordicPhotos/GettyImages
Nýliðar Hull halda áfram að koma á óvart í ensku úrvalsdeildinni og í dag gerði liðið 2-2 jafntefli við topplið Liverpool á Anfield eftir að hafa komist 2-0 yfir. Smáliðið náði 2-0 forystu eftir 22 mínútur þegar Paul McShane skoraði með skalla og skömmu síðar skoraði varnarmaðurinn Jamie Carragher afar slysalegt sjálfsmark. Fyrirliðinn Steven Gerrard kom sínum mönnum til bjargar enn eina ferðina og skoraði bæði mörk Liverpool sem jafnaði fyrir hlé. Heimamenn voru mun sterkari og gerðu sig líklega til að ná í öll stigin, en urðu að sætta sig við þriðja jafnteflið í röð á heimavelli - sannarlega blóðugt fyrir lið sem er að berjast um meistaratitilinn. Það vakti líka athygli að 20 milljón punda maðurinn Robbie Keane var á varamannabekknum allan tímann og fékk ekki tækifæri þrátt fyrir að Liverpool þyrfti sárlega á mörkum og stigunum þremur að halda. Liverpool hefur 38 stig á toppi deildarinnar en Chelsea er í öðru með 36 stig og getur því komist á toppinn með sigri í leiknum sem liðið á til góða á morgun. Manchester United og Aston Villa hafa 31 stig en United á tvo leiki til góða - þann fyrri gegn Tottenham klukkan 17:30 í dag. Grétar lagði upp mark Aston Villa vann góðan 4-2 sigur á Bolton þar sem Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði Bolton, átti skalla í slá og lagði upp síðara mark Bolton. Það dugði þó skammt gegn Villa, sem fékk tvö mörk frá Gabriel Agbonlahor og eitt frá Ashley Young. Everton vann frábæran 1-0 útisigur á Manchester City með marki frá Tim Cahill í blálokin, en Everton gat ekki teflt fram einum einasta framherja í dag vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Wigan jók enn á ógæfu Paul Ince og félaga í Blackburn með 3-0 sigri á heimavelli, Sunderland vann nauðsynlegan 4-0 sigur á West Brom og þá gerðu Stoke og Fulham 0-0 jafntefli. Úrslitin í dag (leikir sem hófust kl. 15): Liverpool 2 - 2 Hull City 0-1 P. McShane ('12) 0-2 J. Carragher ('22, sjálfsmark) 1-2 S. Gerrard ('24) 2-2 S. Gerrard ('32) Aston Villa 4 - 2 Bolton 0-1 J. Elmander ('17) 1-1 G. Agbonlahor ('25) 2-1 K. Davies ('40, sjálfsmark) 3-1 G. Agbonlahor ('68) 4-1 A. Young ('78) 4-2 K. Davies ('86)Manchester City 0 - 1 Everton 0-1 T. Cahill ('90) Middlesbrough 1 - 1 Arsenal 0-1 E. Adebayor ('17) 1-1 J. Aliadière ('29)Sunderland 4 - 0 West Bromwich Albion 1-0 K. Jones ('22) 2-0 K. Jones ('23) 3-0 A. Reid ('40) 4-0 D. Cissé ('47, víti) Wigan Athletic 3 - 0 Blackburn Rovers 1-0 E. Heskey ('10) 2-0 Luis Valencia ('12) 3-0 L. Cattermole ('77) Stoke City 0 - 0 Fulham
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira