Arteta er leikmaður 14. umferðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. nóvember 2007 12:27 Mikel Arteta stóð sig vel gegn Sunderland um helgina.
Mikel Arteta, leikmaður Everton, var maðurinn á bak við 7-1 sigur sinna manna á Sunderland um helgina og er leikmaður 14. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. David Moyes, stjóri Everton, hældi Arteta mikið eftir leikinn. „Frammistaða Arteta í fyrri hálfleik var töfrum líkust," sagði Moyes. „Hann skapaði frábær marktækifæri og er ótrúlegt að hann sé nýbúinn að jafna sig á meiðslum. Þegar hann er upp á sitt besta stenst honum enginn snúning." Arteta skoraði reyndar ekki í leiknum en hann stjórnaði spili liðsins eins og hershöfðingi. Moyes sagði einnig eftir leikinn að hann hafi aldrei séð Everton spila eins vel síðan hann tók við liðinu. Mikel Arteta er 25 ára gamall Spánverji sem kemur frá Baskalandi. Fimmtán ára gamall gekk hann til liðs við unglingaliðs Barcelona þar sem hann var í þrjú ár. Hann var svo lánaður til Paris Saint-Germain árið 2000 og dvaldi í tvö ár í Frakklandi. Þá var hann keyptur til Rangers í Skotlandi þar sem hann sló í gegn á sínu fyrsta tímabili. Hann vann sér fljótt sæti í byrjunarliðinu og var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum liðsins. Hann átti erfitt uppdráttar á seinna tímabili sínu hjá félaginu vegna meiðsla en á sínum tíma þar vann hann skosku deildina með Rangers, sem og bikarinn og deildabikarinn. Árið 2004 gekk hann til liðs við Real Sociedad í heimalandi sínum þar sem hann féll í skuggann á Xabi Alonso og náði aldrei að festa sinn sess í liðinu. Ári síðar var hann lánaður til Everton sem keypti hann svo sumarið 2005. Arteta var hugsaður sem eftirmaður Thomas Gravesen og stóð þar svo sannarlega undir væntingum. Á sínu fyrsta heila tímabili var hann kjörinn leikmaður ársins hjá Everton bæði af leikmönnum og stuðningsmönnum. Á síðasta tímabili var hann aftur valinn bestur af leikmönnum Everton og í kosningu á heimasíðu Skysports var hann valinn besti miðvallaleikmaður deildarinnar, á kostnað Cristiano Ronaldo. Hann skrifaði í sumar undir nýjan fimm ára samning við Everton og fyrir skemmstu spilaði hann sinn 100. leik fyrir félagið. Hann er löngu búinn að festa sig í sessi sem einn lykilmanna liðsins og er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Everton. Arteta hefur þó ekki enn hlotið náð fyrir augum Luis Aragones, landsliðsþjálfara Spánverja, David Moyes til mikillar furðu. Nafn: Mikel Amatriain Arteta Fæddur: 28. mars 1982 í San Sebastían, Guipuscoa, Spáni. Félög: Paris Saint-Germain, Rangers, Real Sociedad og Everton. Númer: 6
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira