Gauck ber virðingu fyrir Snowden Guðsteinn Bjarnason skrifar 26. júlí 2013 12:00 Joachim Gauck forseti og Angela Merkel kanslari á þingi nýverið. Nordicphotos/AFP
Joachim Gauck Þýskalandsforseti segist bera virðingu fyrir bandaríska uppljóstraranum Edward Snowden, sem lak skjölum um stórfelldar fjarskiptanjósnir bandarískra stjórnvalda. Gauck hefur til þessa forðast að tjá sig um málið. Í viðtali við þýska dagblaðið Passauer Neue Presse sagði hann opinberar stofnanir vissulega geta villst út af braut laga og réttar, en upplýsingar um slíkt geti orðið til þess að úrbætur verði gerðar: „Sá sem birtir þær opinberlega af samviskuástæðum á virðingu okkar skilda,“ segir Gauck. Bandarísk stjórnvöld líta á Snowden sem föðurlandssvikara fyrir að birta upplýsingar, sem áttu að fara leynt. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur tekið allt annan pól í hæðina en Gauck forseti. Hún hefur sagt njósnirnar lýðræðisríkjum nauðsynlegar. Að öðrum kosti standi þau berskjölduð og varnarlaus. Ummæli hennar hafa vakið hörð viðbrögð í Þýskalandi og málið orðið eitt af stóru kosningamálunum fyrir þingkosningarnar í haust. Snowden situr enn fastur á alþjóðaflugvellinum í Moskvu, eftir meira en mánuð þar án gilds vegabréfs. Hann bíður þess að fá í hendurnar pappíra, sem rússnesk stjórnvöld hafa heitið honum og tryggja honum tímabundið dvalarleyfi í Rússlandi. Bandaríkjaþing ræðir nú um að samþykkja refsiaðgerðir gegn ríkjum, sem veita Snowden aðstoð.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira