Hampa lögleiðingu hampsins í Washington 7. desember 2012 07:00 Áhugafólk um lögleiðingu kannabisefna fagnaði á viðeigandi hátt í Seattle. Þar á meðal var þessi herramaður, sem kallaður er Prófessor Gizmo. Fréttablaðið/AP
Lög um lögleiðingu kannabisefna tóku gildi í Washington-ríki í Bandaríkjunum í gær og komu hundruð manna saman af því tilefni undir Geimnálinni í Seattle og nýttu sér þetta nýfengna frelsi. Íbúar ríkisins samþykktu lögin í almennri atkvæðagreiðslu í síðasta mánuði, en hið sama gerðu íbúar Colorado og eru þetta einu tvö ríkin þar sem almenn neysla er leyfð. Í Colorado taka lögin gildi eftir áramót. Nú fyrst um sinn er fólki yfir 21 árs heimilt að neyta kannabisefna innandyra og hafa allt að 30 grömm undir höndum. Nánari útfærsla verður sett í lög innan tíðar, en þau munu fela í sér reglugerðir fyrir framleiðslu, vinnslu og sölu efnanna, og leggst 25 prósenta skattur á arð á hverju stigi. Er áætlað að tekjur ríkisins gætu numið hundruðum milljóna dala árlega. Kannabisefni eru þó enn bönnuð samkvæmt alríkislögum, þannig að alríkislögreglan gæti handtekið fólk fyrir að eiga eða selja efnin. Dómsmálaráðuneytið sagði ekkert hafa breyst í þeim málum en hefur þó ekki gefið nokkuð út um hvort reynt verði að ógilda lögin. Fleiri hópar gátu fagnað í Washington í gær, þar sem hjónabönd einstaklinga af sama kyni voru einnig leyfð. Mynduðust því langar biðraðir við skrifstofur sýslumanna.- þj
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira