Erlent

Tveggja hæða risaþota keypt til einkanota

Rúmar allt að 840 manns.
Rúmar allt að 840 manns.

Ónafngreindur einkaaðili hefur á alþjóðlegu flugsýningunni í París lagt fram pöntun á Airbus A380-risaþotu, til notkunar sem einkaþotu.

Að því er greint er frá á fréttavef BBC segja talsmenn Airbus að kaupandinn, sem sé hvorki frá Evrópu né Bandaríkjunum, myndi nota vélina „til persónulegra nota fyrir sig og fylgdarlið sitt“.



A380-þotan er á tveimur hæðum, með nýtanlegt rými upp á 900 fermetra og kostar sem svarar um 19 milljörðum króna. Sérþjálfaða flugmenn þarf til að fljúga vélinni og hún getur ekki lent nema á sumum flugvöllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×