Fuglaflensa í Tyrklandi 23. október 2005 15:04 MYND/AP
Fuglaflensan mannskæða er nú komin að landamærum Evrópu. Talsmenn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tilkynntu í morgun að rannsóknir úr sýnum, sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi, hefðu leitt í ljós afbrigði veirunnar sem væri hættulegt mönnum. Um er að ræða fuglaflensu-afbrigðið, H5N1, sem þegar hefur valdið miklum usla í Asíu og kostað um sextíu manns lífið. Þessar niðurstöður þyka mikið áfall fyrir Tyrki, sem hafa nýhafið aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innflutningur á fuglakjöti og öðrum fuglaafurðum frá landinu var bannaður um leið og grunur lék á að veiran hefði greinst þar, en nú þegar staðfestar niðurstöður sérfræðinga liggja fyrir þarf væntanlega að grípa til enn víðtækari aðgerða. Sérfræðingar ESB gera ráð fyrir að niðurstöður úr sýnum í Rúmeníu liggi fyrir í dag eða á morgun. Þeir ganga út frá því að um sama stofn sé að ræða þar og í Tyrklandi - það er að um sé að ræða fuglaflensuna mannskæðu. Markos Kyprianou, yfirmaður heilbrigðis- og neytendaverndar ESB, segir að sérfræðingar sambandsins áformi að halda neyðarfund um málið á morgun. Hann segir líklegt að fólk, sem sé á ferðalagi um Tyrkland og Rúmeníu, og önnur lönd þar sem veiran hefur greinst, verði hvatt til að gera varúðarráðstafanir.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira