Erlent

Treysta á vinnuafl frá A-Evrópu til að koma blöðum til lesenda

Frá skrifstofum Nyhedsavisen.
Frá skrifstofum Nyhedsavisen. MYND/Alda Lóa

Svo mikill skortur er á blaðburðarfólki í Danmörku að dreifingarfyrirtæki í landinu hafa leitað eftir starfsfólki í Austur-Evrópu til þess að tryggja það að dagblöðin komist í hendur danskra lesenda á morgnana.

Meðal þeirra sem átt hafa í vandræðum er Morgendistribution Danmark sem er félag í sameiginlegri eigu danska póstsins og 365 Media Scandinavia. Fyrirtækið dreifir Nyhedsavisen og er með um 800 manns í vinnu við það, þar af um 60 prósent frá Austur-Evrópu.

Haft er eftir forstjóra fyrirtækisins í blaðinu Agenda að án þeirra væri ómögulegt að koma fríblaðinu til lesenda. Dreifendur annarra fríblaða í Danmörku hafa einnig lent í vandræðum með að fá blaðburðarfólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×