Ítalskir ráðamenn fengu byssukúlur í pósti Hugrún Halldórsdóttir skrifar 18. desember 2011 12:45 Berlusconi er eflaust djúpt hugsi eftir að hann fékk byssukúluna í pósti.
Ítalskir ráðamenn eru slegnir óhug vegna hótunarbréfa sem þeim hafa borist vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnar Marios Montis. Silvio Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu og Mario Monti núverandi forsætisráðherra eru á meðal þeirra sem fengið hafa hótunarbréf en þeim fylgdu einnig byssukúlur. Sendingarnar minna einna helst á atriði úr kvikmynd um mafíósa en í bréfunum er ofbeldi hótað ef efnahagsráðstafanirnar, sem fela í sér 33 milljarða evra niðurskurð ríkisútgjalda, verði ekki endurskoðaðar. Neðri deild ítalska þingsins samþykkti áætlunina á föstudaginn en þingmenn efri deildarinnar greiða atkvæði sitt í þessari viku. Bréfin voru sett í póst í Calabria-héraði síðastliðinn fimmtudag en í þeim segir meðal annars „Við eigum aragrúa af byssukúlum og fáum sprengjuefni frá arabískum vinum okkar. Þetta er barátta gegn hinum valdamiklu í þágu hinna fátæku. Niðurskurður í ríkisútgjöldum á eftir að bitna á þeim og ætti því ekki að verða samþykktur. Ef einhvern langar til að leika hetju, þá ætti sá hinn sami að hugsa fyrst um fjölskyldu sína." Monti, sem tók við forsætisráðherraembættinu þegar Berlusconi sagði af sér í síðasta mánuði, hefur sagt samlöndum sínum að búa sig undir kreppu-tímabil þar sem landið þurfi að draga úr ríkisskuldum sínum sem nema 1,9 milljörðum evra, eða 304 milljörðum íslenskra króna.
Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Dagný Ósk látin Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Innlent Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Innlent Fleiri fréttir Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Sjá meira