Opið hús hjá hryðjuverkamönnum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. desember 2008 08:32 Verðir, vopnaðir Kalashnikov-rifflum, sem almennt sjást á vappi við þetta hlið, voru víðs fjarri í gær þegar Lashkar-e-Taiba-menn sýndu húsakost sinn. MYND/EPA
Pakistanskur hryðjuverkahópur, sem kennt hefur verið um ódæðisverkin í Mumbai, opnaði í gær dyr sínar fyrir fjölmiðlum til að sanna sakleysi sitt. Það ber ekki mikið á ómerktum afleggjara tæpa 50 kílómetra norður af Lahore, höfuðborg Punjab-héraðsins í Norðaustur-Pakistan, ekki mikið meira en á íslenskum sveitavegi á Rangárvöllum. Vegurinn liggur þó að höfuðstöðvum hryðjuverkahreyfingarinnar Lashkar-e-Taiba sem er hinn pólitíski vængur Jamaat-ud-Dawa en þeir piltar kalla víst ekki allt ömmu sína. Í gær sviptu samtökin þó hulunni af þeirri ógnvænlegu leynd sem umlykur þau til þess að reyna að sýna heimsbyggðinni fram á að þau bæru ekki ábyrgð á hermdarverkunum í Mumbai á Indlandi í síðustu viku þar sem tæplega tvö hundruð manns týndu lífi sínu og mörg hundruð að auki særðust á sál og líkama. Var þar sýnt fram á það sem aldrei fyrr að skammt er milli illra verka og stórra. Með opna húsinu vildu félagar Jamaat-ud-Dawa sýna og sanna að þeir hefðu ekkert að fela. Hér er ekkert nema sjúkrahús, mjólkurbú, mötuneyti og fiskeldisstöð sagði talsmaður samtakanna sem er enginn annar en Hafiz Saeed en nafn hans er eitt af þeim tuttugu efstu á listanum yfir þá sem indversk yfirvöld vilja sjá bak við lás og slá. Kannski segir hann satt, hver veit?
Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Innlent Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Fleiri fréttir Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Sjá meira