Erlent

Öflugur tölvuvírus herjar á Facebook notendur

Öflugur tölvuvírus herjar nú á hina vinsælu Facebook netsíðu. Vírusinn er hannaður til að stela greiðslukortaupplýsingum frá notendum netsíðunnar.

Vírusinn sem ber heitið Koobface dreifir sér um Facebook í formi skilaboða til notenda síðunnar sem sögð eru frá vini viðkomandi á síðunni. Yfirleitt eru skilaboðin myndband undir fyrirsögninni „þú ert fyndinn á þessu myndbandi" eða „þú lítur æðislega út á þessu myndbandi".

Þegar notendur ætla að opna myndbandið eru þeir beðnir um að niðurhala Adobe Flash Player forriti og ef þeir gera slíkt er vírusinn kominn inn í tölvur þeirra og hreiðrar um sig í stýrikerfinu.

Guy Bunker sérfræðingur hjá Symantec sem framleiðir Norton Antivirus segir að Koobface noti tvær aðferðir við að ná greiðslukortaupplýsingum. Annarsvegar bíði hann eftir að viðkomandi kaupi eitthvað á netinu með kortinu sínu og hinsvegar leiti hann uppi slík kaup í fortíðinni.

Facebook er geysivinsæl netsíða með um 120 milljón notendur á heimsvísu. Hér á Íslandi eru nær 100.000 manns skráðir á síðuna og nota hana sér til gagns og gamans.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×