Erlent

Fjöldi sýninga á Broadway hætta vegna fjármálakreppunnar

Fjármálakreppan kemur nú illa við kaunin á hinni þekktu leikhúsgötu Broadway í New York. Sökum minnkandi aðsóknar eru lokatjöldin að falla á fjölda af þekktum leiksýningum þar.

Jafnvel heimsþekktar sýningar á borð við Equus með Daniel Radcliffe í aðalhlutverki hafa gengið fyrir hálfu húsi og sumar sýningar ná ekki að lifa út frumsýningarvikuna sökum þess hve aðsóknin er dræm. Samkvæmt frétt í breska blaðinu Telegraph munu 15 leiksýningar á Broadway verða slegnar af á næstu vikum.

Það sem af er leiklistartímabilinu á Broadway frá því í haust hafa aðeins tvær af nokkrum tugum sýninga skilað hagnaði. Þar var um að ræða The Seagull með Kristin Scott Thomas í aðalhlutverki og All My Sons með Katie Holmes í aðalhlutverki. Bæði þessi leikrit eru skrifuð af Arthur Miller. Meðal þeirra sýninga sem lagðar verða niður fyrir áramótin má nefna Grease, Young Frankenstein og Hairspray.

Kunnugir telja að ástandið muni aðeins fara versnandi eftir því sem líður á veturinn því ekki aðeins New York búar spara nú við sig leikhúsferðir heldur hefur einnig dregið stórlega úr komu ferðamanna til borgarinnar sem oft hafa sótt leikhúsin í miklum mæli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×