Gekk 56 kílómetra eftir að GPS-tækið sendi hann í ógöngur Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2018 23:41 Mikill snjór er á svæðinu þar sem Cartwright týndist. Vísir/Getty
Bandarískur vörubílstjóri, sem týndist í fjóra daga í Oregon komst í leitirnar eftir að hann gekk 56 kílómetra til byggða. Mjög kalt er á svæðinu þar sem hann týndist og mikill snjór. Hinn 22 ára gamli Jacob Cartwright hlaut þó engin alvarleg meiðsli. Hann var að keyra vörubíl þegar hann sló rangt heimilisfang í GPS-tæki hans og keyrði hann því eftir röngum og lítið förnum vegi. Þar festist bíll hans og þurfti hann að ganga aftur til byggða þar sem mjög lítið símasamband er á svæðinu og sími hans varð fljótt rafmagnslaus. Hann hóf göngu sína skömmu eftir miðnætti á miðvikudaginn, hvorki með mat né vatn, og staðnæmdist ekki fyrr en hann nálgaðist heimabæ sinn La Grande og fékk far heim til sín. Eiginkona hans var á fundi með embættismönnum La Grande þar sem leitin að Cartwright var rædd í þaula. þegar hún kom heim til þeirra hjóna fann hún eiginmann sinn þar og fór með hann á sjúkrahús.Samkvæmt AP fréttaveitunni var Cartwright spurður af hverju hann hefði ekki tekið kartöfluflögur sem voru í bíl hans með sér þegar hann gekk af stað. Hann svaraði á þá leið að hann vildi ekki skemma farm sinn.
Bandaríkin Mest lesið Davíð Oddsson er látinn Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Erlent Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Sjá meira