Stór stund á ferli Cyrille Regis var á Laugardalsvellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2018 17:00 Cyrille Regis í leiknum á móti Íslandi á Laugardalsvellinum. Vísir/Getty
Englendingar hafa í dag minnst knattspyrnumannsins Cyrille Regis sem lést í gær aðeins 59 ára gamall. Regis var meðal frumkvöðla svartra fótboltamanna á sínum tíma og spilaði í frægri framlínu West Brom Albion þar sem hann skoraði 112 mörk í 297 leikjum á árunum 1977 til 1984.The Man. pic.twitter.com/HGQTD0kXkN — West Bromwich Albion (@WBA) January 15, 2018 Ísland kemur við sögu á ferli Cyrille Regis en fyrsti leikur hans í byrjunarliði enska landsliðsins var einmitt á móti Íslandi á Laugardalsvellinum 2. júní 1982. Regis spilaði reyndar aðeins í 40 mínútur en þurfti þá að fara af velli. Hann lék aðeins tvo landsleiki til viðbótar á ferlinum. Leikur Íslands og Englands endaði með 1-1 jafntefli en Arnór Guðjohnsen kom íslenska liðinu í 1-0 í fyrri hálfleik. Jöfnunarmark Englendinga skoraði Paul Goddard sem hafði einmitt komið inná fyrir Regis. Arnór átti mjög góðan leik og fékk gott færi til að skora sitt annað mark í seinni hálfleiknum. Besti leikmaður enska landsliðsins var aftur á móti Glenn Hoddle sem þarna var 22 ára gamall og aðeins að spila sinn ellefta landsleik. Þeir áttu eftir að verða 53 talsins þar af tveir þeirra á HM á Spáni nokkrum vikum seinna.RIP Cyrille Regis, 59. West Brom & England star & one of Britain’s first prominent black footballers. Very sad news. pic.twitter.com/BzZSQvKMDm — Piers Morgan (@piersmorgan) January 15, 2018
Enski boltinn Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira