Velta því fyrir sér hvaða leikmenn Man. United myndu hjálpa Liverpool mest og öfugt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2018 14:00 Virgil van Dijk. Vísir/Getty
Topplið Liverpool og erkifjendur þeirra í Manchester United mætast í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi og margir bíða spenntir eftir þessum stórleik helgarinnar. Knattspyrnuspekingar Sky Sports fengu það verkefni í tilefni af þessum leik á Anfield að meta það hvaða leikmenn úr Liverpool eða Manchester United myndu hjálpa hinu liðinu mest. Spekingar Sky Sports voru þeir Paul Merson, Matt Le Tissier, Phil Thompson og Charlie Nicholas.Which player should Liverpool and Man Utd sign from the other? The Soccer Saturday pundits discuss | Football News https://t.co/Wbzi7LTPJVpic.twitter.com/U3GRQMDAup — peter max (@AuthorityBrand1) December 13, 2018Paul Merson er á því að framherjinn Romelu Lukaku hjá Manchester United myndi hjálpa Liverpool mest af því að ef Liverpool klárar ekki titilinn á þessu tímabili þá sé það að hans mati vegna þess að þeir Roberto Firmino og Sadio Mane skori ekki nógu mikið við hlið Mohamed Salah. Merson er síðan ekki í neinum vafa um að Manchester United myndi þiggja Virgil van Dijk með þökkum. Matt Le Tissier er sammála því en Le Tissier átti í erfiðleikum með að finna United-mann sem gæti hjálpað Liverpool. Hann endaði á því að nefna markvörðinn David de Gea eins skrýtið og það hljómar eftir frammistöðu Alisson að undanförnu. Phil Thompson nefnir líka Virgil van Dijk fyrir Manchester United en átti líka í vandræðum með að finna United-mann fyrir Liverpool. Hann talaði um Juan Mata en telur að eftir komu Xherdan Shaqiri þá þurfi Liverpool ekki á Spánverjanum að halda. Charlie Nicholas bætist í hóp þeirra sem áttu í vandræðum með að finna United-mann fyrir Liverpool en segist aftur á móti geta nefnt marga leikmenn Liverpool sem gætu hjálpað liði Manchester United. Nicholas segir auðvelt að nefna menn eins og Van Dijk eða Salah en að hann væri hinsvegar mikill aðdáandi Roberto Firmino. Það má finna alla umfjöllun Sky og skoðanir þessara fjögurra spekinga með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira