Liðsfélagi Gylfa nú orðinn liðsfélagi Jóhanns Berg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2018 14:52 Aaron Lennon. Vísir/EPA
Aaron Lennon er orðinn leikmaður Burnley en hann gekk frá tveggja og hálfs árs samningi við lið Jóhanns Berg Guðmundssonar í dag. Lennon yfirgefur þar með Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Everton þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú ár. Það er ekki gefið upp hvað hinn þrítugi Aaron Lennon mun kosta Burnley en hann fær treyjunúmer 25 hjá félaginu. Lennon hefur verið í enska landsliðinu og kom fyrst til Everton á láni frá Tottenham Hotspur tímabilið 2014-15 áður en hann gekk frá endanlegum félagsskiptum. Hann kemur upphaflega úr herbúðum Leeds. „Burnley var félagið sem ég vildi koma til og ég get ekki beðið eftir því að fá að byrja. Ég hlakka til að spila hér,“ sagði Aaron Lennon við heimasíðu Burnley.A selection of pics from the @AaronLennon12 signing. Keep an eye on our social channels for a chance to win this shirt, signed by the new boy! pic.twitter.com/Vi70XYzaNH — Burnley FC (@BurnleyOfficial) January 23, 2018 „Ég tel mig enn hafa nóg að bjóða. Ég er bara þrítugur og vill enn spila á hæsta stigi. Ég hef verið frá fótboltanum síðastliðið ár og vil því komast aftur inn á völlinn og spila eins mikið og mögulegt er,“ sagði Lennon. „Ég hef aldrei spilað auðveldan leik á móti Burnley en þeir hafa staðið sig frábærlega á þessu tímabili og eigi skilið að vera þar sem þeir eru,“ sagði Lennon.Welcome @AaronLennon12pic.twitter.com/lcZ4NEJ4nJ — Burnley FC (@BurnleyOfficial) January 23, 2018
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira