Harry Kane: Tottenham verður að fara að vinna titla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2018 17:00 Harry Kane. Vísir/Getty
Tottenham hefur verið eitt mest spennandi knattspyrnulið Englands undanfarin ár en það hefur vantað að liðið fari alla leið og vinni titil. Framherjinn Harry Kane segir að félagið leggi mikla áherslu á það að enda biðina eftir titli á þessu tímabili. Næst á dagskrá er leikur á móti nágrönnunum í Arsenal í átta liða úrslitum enska deildabikarsins en hann fer fram annað kvöld. „Við erum bara á þeim stað sem lið að næsta skref er að vinna tila. Við verðum að fara byrja á því að vinna titla,“ sagði Harry Kane í viðtali við Sky Sports. „Ef við vinnum þennan leik á móti Arsenal þá verðum við lausir við annað sterkt lið í þessari keppni. Þetta er því stórt tækifæri fyrir okkur. Við mættum þeim fyrir nokkrum vikum og þá höfðu þeir betur. Það er því gott að fá að mæta þeim svona fljótt aftur,“ sagði Kane. Arsenal vann 4-2 sigur á Tottenham í ensku deildinni á dögunum en síðan hefur Tottenham unnið alla þrjá deildarleiki sína og komist áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar. „Vonandi tekst okkur að ná réttu úrslitunum í þetta skiptið. Leikirnir gerast ekki mikið stærri en leikur á móti erkifjendunum í átta liða úrslitum,“ sagði Kane. Mauricio Pochettino settist í knattspyrnustjórastólinn hjá Tottenham í maí 2014 og síðan þá hefur liðið hækkað sig á hverju ár. Liðið hefur verið í fimmta, þriðja, öðru og þriðja sæti í ensku úrvalsdeildinni undanfarin ár. Tottenham hefur aftur á móti ekki unnið titil undir stjórn Pochettino. Undanfarin tvö tímabil hefur liðið fallið út í undanúrslitum enska bikarsins og liðið tapaði líka fyrir Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins 2015. Tottenham vann síðast titil árið 2008 þegar enski deildabikarinn kom í hús eftir 2-1 sigur á Chelsea á Wembley en Tottenham vann enska bikarinn síðast 1991. Síðasti Evróputitilinn kom í hús árið 1984 og Spurs hefur ekki unnið ensku deildina síðan 1961.
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Sjá meira