Aron er eflaust flestum íslenskum tónlistarunnendum kunnugur, en hann hefur verið einn af fremstu tónlistarmönnum Íslands núna í um tvö ár þrátt fyrir að vera einungis 18 ára gamall. Í byrjun sumars gaf hann út plötuna Trúpíter í gegnum Sticky Records með dreifingu frá Sony.
„Það er geggjað að fara út og kynnast fólki og spila fyrir fólk sem hefur aldrei heyrt í þér áður og hafa actually áhuga á tónlistinni“ segir Aron í samtali við Vísi.
Á leið út fyrir landsteina
Aron segist stefna á að halda áfram að koma fram erlendis og að tónleikarnir í Harstad marki upphafið á útrás sinni.„Ég á mér stóra drauma, ég mun bara halda áfram að elta þá,“ segir Aron.
Aron segir að það sé ótrúlega gaman að spila úti en að það sé langt frá því að vera auðvelt.
„Þetta er algjör keyrsla sko, maður er ekkert í fríi, maður er að vinna á fullu, ég er á æfingu allan daginn og fer svo að sofa, þetta er eins og langur vinnudagur.“
Heimsklassa tónlistargrafík
Myndlistarmaðurinn Elí hefur farið út með Aroni til Noregs öll þrjú skiptin til þess að meðhöndla grafíska hluta tónleikanna.Elí var ánægður með ferðina og segir í samtali við Vísi að tónleikar Arons í Harstad hafi verið „100% þeir bestu sem ég hef séð honum“
Elí hefur einnig búið til tónlistargrafík fyrir Sturla Atlas, Flona og Joey Christ, til að nefna nokkra. Grafík hans fyrir Aron hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og má sjá brot af henni á Instagram síðu Elí.
Eins og Vísir greindi frá í byrjun árs skrifaði Aron undir dreifingarsamning við Sony, en það tengist þessari tónleikaför þó ekki.
Aron var bókaður til Noregs í gegnum aðalsöngvara hljómsveitarinnar „The Band Called O.“ Hægt er að sjá kynningarmyndband fyrir tónleikana þar sem Aron Can kemur fram ásamt „The Band Called O“ hér að neðan.
Frumraun Arons með hljómsveit
Þetta var í fyrsta skipti sem Aron kemur fram ásamt hljómsveit, en hann er vanur því að notast einungis við plötusnúð þegar hann spilar á tónleikum hérlendis.Aðspurður hvernig það sé að koma fram með undirspili frá alvöru hljómsveit segir Aron: „Þegar maður er einn uppi á sviði á Íslandi þá snýst þetta bara um að turna upp og hafa fólk dansandi hoppandi og öskrandi. Þetta var svo sérstakt að halda tónleika með hljómsveit. Þetta er 100% eitthvað sem mig langar til að vinna meira með.“
Aron er að spila út um allt land það sem eftir er sumars og bætir við í lok samtals við fréttamann að það sé aldrei að vita hvort að aðdáendur Arons fái ekki að heyra nýja tónlist frá honum á næstunni, þrátt fyrir að hann hafi gefið út fimmtán laga plötu um daginn.
„Sticky Records sofa aldrei, það er nóg framundan“ segir hann að lokum.