Gamall þjálfari Skagamanna í úrvalsliði Le Tissier Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2017 08:00 Ivan Golac, til vinstri, lék með Southampton frá 1978 til 1983 og aftur frá 1984 til 1986. Vísir/Getty
Matt Le Tissier er líklega einn allra besti leikmaður sem hefur spilað fyrir enska félagið Southampton. Hann hefur nú valið besta ellefu manna úrvalslið í sögu Southampton. Le Tissier hélt tryggð við félagið alla tíð og lék með því frá 1986 til 2002. Hann varð á þeim tíma fyrsti miðjumaðurinn til að skora hundrað mörk í ensku úrvalsdeildinni. Stuðningsmenn Southampton kölluðu hann „Le God" en hann skoraði 161 mark í 443 leikjum með félaginu. Eitt besta tímabilið hans var 1993 til 1994 þegar hann skoraði 25 mörk í 38 leikjum en tímabilið eftir var hann með 19 mörk í 41 leik og var valinn í úrvalslið ensku deildarinnar. Athygli vekur að Matt Le Tissier er ekki með sjálfan sig í liðinu sem má sjá hér fyrir neðan.Here’s my @SouthamptonFC Ultimate XI! To select yours visit: https://t.co/0ekYL6rm1I. The fans’ best team will be revealed at @SeaCityMuseumpic.twitter.com/u4BqGkFEP1 — Matt Le Tissier (@mattletiss7) October 27, 2017 Hægri bakvörðurinn í úrvalsliði Matt Le Tissier er Júgóslavinn Ivan Golac en sá kappi er með Íslandstengingu. Ivan Golac tók nefnilega við liði Skagamanna af Guðjóni Þórðarsyni fyrir 1997 tímabilið. ÍA var þá tvöfaldur meistari frá 1996 og hafði unnið Íslandsmeistaratitilinn fimm ár í röð.Viðtalið við Ivan Golac eftir fyrsta leikinn sem þjálfari ÍA sumarið 1997.Mynd/DV frá 20.maí 1997Eftir 3-1 tap á móti ÍBV í fyrsta leik hafði Ivan Golac engar áhyggjur því Skagaliðið myndi bara vinna hina sautján leikina. Það fór nú ekki þannig og Ivan Golac var rekinn 18. júlí en þá var Skagaliðið dottið út úr bikarnum og búið að tapa 4 af fyrstu 11 leikjum sínum á Íslandsmótinu. Logi Ólafsson tók við starfi hans.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 23-24 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti City fékk skell í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira