Stefnir í að Wauquiez verði nýr leiðtogi franskra hægrimanna Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2017 12:41 Forsetinn fyrrverandi, Nicolas Sarkozy, og Laurent Wauquiez. Vísir/afp
Allt bendir til að hægrimaðurinn Laurent Wauquiez verði valinn nýr leiðtogi franskra Repúblikana í kvöld. Hinn 42 ára Wauquiez tilheyrir fylkingu forsetans fyrrverandi, Nicolas Sarkozy, og hefur einsett sér það beina spjótum sínum að Emmanuel Macron forseta. Wauquiez er tveimur árum eldri en Macron og lærði við sama háskóla og forsetinn. Wauquiez verður ætlað að sameina flokkinn eftir að hann bað afhroð í forseta- og þingkosningunum í landinu vor og sumar. Alls geta 234.908 flokksmenn kosið í leiðtogakjöri flokksins, en kosningin fer að stærstum hluta fram rafrænt og lýkur í kvöld. Le Monde segir flesta sammála um að ekki komi til með að þurfa aðra umferð til að tryggja kjör Wauquiez.Fulltrúi hægrivængsins Líkt og Sarkozy þá er Wauquiez fulltrúi hægrivængs flokksins. Í sjónvarpsviðtali í vor sagðist Wauquiez ekki líta á Donald Trump Bandaríkjaforseta sem fyrirmynd, en að ýmislegt mætti læra af honum. „Hann afhjúpar ýmislegt um lýðræði samtímans. Borgarar vilja ekki fólk sem segja þeim hvað þeir eiga að hugsa og hvað þeir hafa rétt á að segja,“ sagði Wauquiez. Laurent Wauquiez er forseti héraðsstjórnar Auvergne-Rhône-Alpes, en á árunum 2011 til 2012 var hann ráðherra málefna æðri menntunar í ríkisstjórn Sarkozy.Sögulegur valdaflokkur Franskir Repúblikanar (Les Républicains) er annar tveggja flokka sem hafa verið við völd frá stofnun fimmta lýðveldis Frakka árið 1958. Áður bar flokkurinn nafnið UMP (L'Union pour un mouvement populaire). François Fillon var forsetaefni flokksins í forsetakosningunum í vor, en hann hlaut ekki nægilega mörg atkvæði til að komast í síðari umferð kosninganna, þar sem Macron og Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, öttu kappi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira