Kanna möguleika á þriggja flokka stjórn í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2017 08:26 Trine Skei Grande, formaður Venstre, Erna Solberg, formaður Høyre, Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins og Knut Arild Hareid, formaður Kristilega þjóðarflokksins í aðdraganda kosninganna í september. Vísir/afp
Fjálslyndi flokkurinn Venstre hefur samþykkt að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Høyre og Framfaraflokknum í Noregi. Trine Skei Grande, formaður Venstre, segir flokkinn með þessu vilja gera hægristjórnina frjálslyndari. Trine Skei Grande sagði á fréttamannafundi í gær að flokkur hennar hafi gert skýrar kröfur þegar kæmi að samstarfi, eigi það að verða að veruleika. „Við ætlum að vinna að grænni ríkisstjórn, örlátari ríkisstjórn sem lítur á manneskjur og lyftir þeim sem á því þurfa að halda,“ segir Grande. Erna Solberg, forsætisráðherra og formaður Høyre, fagnar því að Venstre vilji hefja viðræður en segir enn ekki ljóst hvort að fulltrúar Vestre fái sæti við ríkisstjórnarborðið fyrr en viðræðum er lokið. „Þreifingar hafa staðið í langan tíma þar sem við höfum rætt um hvað við eigum sameiginlegt, hvaða áskoranir samfélag okkar stendur frammi fyrir og eftir þær einbeittu viðræður sem við höfum haft er ég ánægð að Venstre hafi valið að fara þessa leið.“ Høyre og Framfaraflokkurinn hafa myndað minnihlutastjórn síðustu fjögur árin með stuðningi Venstre og Kristilega þjóðarflokksins. Allt frá kosningunum 11. september síðastliðinn, þar sem Høyre varð stærsti borgaralegi flokkurinn, hafa þreifingar staðið, en leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins sagði að loknum kosningum ekki vilja starfa í óbreyttri stjórn með Framfaraflokknum. Jafnvel þó að Venstre myndi setjast í stjórn með Høyre og Framfaraflokknum væru flokkarnir þrír ekki með meirihluta á þingi og yrðu áfram háðir stuðningi Kristilega þjóðarflokksins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira