Upphitun: Ná Jói Berg og félagar að stoppa City? │ Myndband Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. október 2017 09:45
Níunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar heldur áfram í dag með sjö leikjum, en nýliðar Brighton lögðu West Ham í fyrsta leik umferðarinnar í gærkvöld. Við byrjum leik á Stamford Bridge þar sem Englandsmeistarar Chelsea fá Watford í heimsókn. Búast má við hörkuleik, en Watford hefur byrjað tímabilið frábærlega og er í fjórða sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan Chelsea í fimmta sætinu. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá 11:20. Topplið Manchester City fær Jóhann Berg Guðmundsson og félaga í Burnley í heimsókn á Etihad völlinn. City-liðið getur ekki hætt að skora, en vörn Burnley hefur verið sterk og spurning hvort þeir geti haldið aftur af sóknarkrafti City. Nýliðar Huddersfield taka á móti Manchester United á John Smith's völlinn í Huddersfield. Eftir flotta byrjun hefur gengi nýliðana aðeins farið niður á við og er liðið í 13. sæti með níu stig. United er hins vegar í öðru sætinu, tveimur stigum frá grönnunum í City. Leikur Huddersfield og United verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Newcastle fær Crystal Palace í heimsókn, en Palace sóttu sín fyrstu stig í deildinni í síðustu umferð þegar liðið sigraði Chelsea. Stoke og Bournemouth mætast á bet365 vellinum, en bæði lið eru að berjast í neðri hlutanum, Bournemouth í fallsæti og Stoke ekki langt frá í sextánda sætinu. Í öðrum slag liða í neðri hlutanum fer Leicester til Wales og mætir Swansea. Síðasti leikur dagsins er svo viðureign Southampton og West Brom sem fram fer á St. Mary's í Southampton. Sá leikur er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 16:20. Upphitunarmyndband fyrir leiki dagsins má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira