City þurfti vítakeppni til að sigra Wolves Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. október 2017 21:44 Sergio Aguero tryggði City sigur í vítaspyrnukeppninni. vísir/getty
Manchester United komst örugglega áfram í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins í kvöld. Liðið lagði Swansea af velli 0-2 með mörkum frá Marcus Rashford. Hörður Björgvin Magnússon fékk loksins að spila fyrir Bristol City, en hann hefur verið úti í kuldanum í deildinni en fengið að spila í deildarbikarnum. Bristol lagði úrvalsdeildarlið Crystal Palace að velli 4-1 og kom eitt marka Bristol upp úr löngu innkasti Harðar. Stuðningsmenn Bristol City kunna að meta Hörð Björgvin og tóku þeir víkingaklappið í hvert skipti sem hann tók innkast. Edward Nketiah var hetja Arsenal í kvöld, en framlengja þurfti leik Arsenal og Norwich eftir að Nketiah jafnaði í 1-1 á 85. mínútu. Nketiah skoraði svo sigurmark Arsenal snemma í framlengingunni og tryggði Skyttunum sæti í 8-liða úrslitunum. Aldrei þessu vant tókst Manchester City ekki að skora á 90 mínútum gegn 1. deildar liði Wolves. Þeim til lukku náðu Wolves ekki heldur að koma boltanum í netið og því þurfti að framlengja. Það dugði hins vegar ekki að bæta hálftíma við leiktímann, grípa þurfti til vítaspyrnukeppni til að ráða fram úrslit. Claudio Bravo varði aðra og þriðju spyrnu Wolves frá Alfred N'Diaye og Conor Cody eftir að Kevin de Bruyne og Yaya Toure skoruðu fyrir City. Leroy Sane skoraði svo úr þriðju spyrnunni og Sergio Aguero tryggði City sæti í 8-liða úrslitum.
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira