Morðin í Gautaborg: Föðurnum sleppt úr haldi Atli Ísleifsson skrifar 26. júlí 2017 20:27 Konan og börnin þrjú fundust eftir að tilkynnt var um eld í íbúðinni. Vísir/epa
51 árs gömlum karlmanni, sem grunaður var um að hafa orðið eiginkonu sinni og þremur börnum að bana í sænska bænum Angered, skammt frá Gautaborg, í síðustu viku, hefur verið sleppt. Sænskir fjölmiðlar hafa þetta eftir saksóknara þar í landi.Lögmaður mannsins, Poly Jensell, segir skjólstæðing sinn nú þurfa vinna sig út úr sorginni eftir að hafa misst fjölskyldu sína og síðar hafa verið sakaður um þann hrottalega glæp að hafa orðið henni að bana. Fólkið fannst eftir að tilkynnt var um eld í íbúðinni. Þar fundust konan og eitt barnanna látin. Hin börnin tvö létust í sjúkrabíl á leiðinni á sjúkrahús og á sjúkrahúsi. Áverkar fundust á líkum fólksins sem varð til þess að lögreglu grunaði að þau hafi ekki látist í brunanum og var maðurinn síðar handtekinn og dæmdur í gæsluvarðhald. Karlmaðurinn, sem er bosnískur ríkisborgari, neitaði alla tíð sök í málinu. Saksóknarinn Helena Treiberg Claeson segir í samtali við SVT að eftir réttarkrufningu á líki konunnar hafi komið í ljós að hún hafi ekki látist af völdum þeirra áverka sem fundust á líki hennar, líkt og upphaflega var talið, heldur af völdum eldsins. Þá telji réttarlæknir að konan hafi að öllum líkindum veitt sér áverkana sjálf. Segir Claeson að ekkert bendi til að maðurinn hafi verið valdur að dauða fjölskyldu sinnar. Jensell segir að manninum sé mjög létt að vera loks frjáls ferða sinna. „En nú tekur við það stóra og erfiða verkefni að syrgja. Og svo eru það allar þær spurningar sem eru ósvaraðar. Hvað gerðist? Af hverju? Það er mörgum spurningum ósvarað.“ Maðurinn var giftur konunni, sem var 35 ára, og faðir allra barnanna sem voru á aldrinum tveggja til átta ára.
Tengdar fréttir Morðin í Gautaborg: Faðirinn grunaður um morð á konu sinni og þremur börnum Dómstóll í Svíþjóð hefur dæmt 51 árs gamlan karlmann í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa orðið eiginkonu sinni og þremur börnum að bana fyrir utan Gautaborg á fimmtudag. 22. júlí 2017 13:54 Kona og þrjú börn létust eftir eld í íbúð í Gautaborg Lögregla greinir frá því að svo virðist sem að fólkið hafi verið beitt ofbeldi áður en eldurinn kom upp. 20. júlí 2017 08:38 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira
Morðin í Gautaborg: Faðirinn grunaður um morð á konu sinni og þremur börnum Dómstóll í Svíþjóð hefur dæmt 51 árs gamlan karlmann í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa orðið eiginkonu sinni og þremur börnum að bana fyrir utan Gautaborg á fimmtudag. 22. júlí 2017 13:54
Kona og þrjú börn létust eftir eld í íbúð í Gautaborg Lögregla greinir frá því að svo virðist sem að fólkið hafi verið beitt ofbeldi áður en eldurinn kom upp. 20. júlí 2017 08:38