Bowe Bergdahl sleppur við fangelsisvist Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2017 16:22 Bergdahl yfirgaf stöðu sína í Afganistan árið 2009 og gekk frá herstöðinni sem herdeild hans hélt til í. Vísir/AFP
Bandaríski hermaðurinn Bowe Bergdahl mun sleppa við fangelsisvist. Dómari herdómstóls komst að þeirri niðurstöðu í dag. Þess í stað verður Bergdahl vísað frá hernum með skömm og mun hann ekki eiga rétt á bótum og lífeyri. Hann mun einnig sæta fjársektum og var lækkaður í tign. Bergdahl yfirgaf stöðu sína í Afganistan árið 2009 og gekk frá herstöðinni sem herdeild hans hélt til í. Skömmu seinna var hann handsamaður af Talíbönum og var hann fangi þeirra í fimm ár.Sjá einnig: Talíbanar fagna fangaskiptum Saksóknarar fóru fram á harðan dóm vegna umfangsmikilla meiðsla sem aðrir hermenn urðu fyrir við leitina að Bergdahl. Þeir vildu að Bergdahl yrði dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar. Hann játaði að hafa yfirgefið stöðu sína og herinn og að hafa ekki hegðað sér sem hermaður frammi fyrir óvini. Hann átti yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi.Samkvæmt AP fréttaveitunni tók dómarinn þó tillit til þess að þegar Bergdahl játaði brot sín hefði hann ekki reynt að semja um vægari refsingu eða neitt slíkt. Þá var einnig tekið til refsiminnkunar að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði opinberlega kallað eftir því að hann yrði tekinn af lífi.Í byrjun vikunnar bar Bergdahl vitni og baðst hann afsökunar á því að hafa sett aðra hermenn í hættu. „Ég gerði hræðileg mistök. Að segja að ég sé miður mín er ekki nóg.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira