Mourinho skaut á stuðningsmenn í leikskránni: „Þeir eru 75.000 og hann er einn“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. nóvember 2017 16:00 Uss! skjáskot
Matthew Le Tissier, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta, segir að José Mourinho sé ekki að velja sér réttan slag að ætla að berjast við stuðningsmenn Manchester United. Mourinho, sem sendi stuðningsmönnum pillu eftir sigurinn á Tottenham, gat ekki hamið sig um að senda aðra pillu í leikskránni fyrir leikinn á móti Benfica í Meistaradeildinni í gærkvöldi. „Ég vona að þið njótið leiksins og sum hver njóti hans meira en þið gerðuð á móti Tottenham,“ sagði Mourinho en baulað var þegar Marcus Rashford fór af velli gegn Tottenham en Anthony Martial, sem svo skoraði sigurmarkið, kom inn á. „United byrjaði tímabilið virkilega vel og var að skora fjögur mörk í leik reglulega. Það var þegar Paul Pogba var í liðinu og kannski saknar United hans meira en fólk áttar sig á,“ sagði Le Tissier í þættinum The Debate á Sky Sports í gærkvöldi. „José er líklega búinn að átta sig á því og þess vegna er hann búinn að breyta leikstíl liðsins. Nú er José bara að reyna að ná í sigra þangað til Pogba kemur aftur.“ Aðspurður hvort Mourinho sé að gera rétt með því að pirra stuðningsmennina segir Le Tissier svo ekki vera. „Þetta er rangt hjá honum. Hann á ekki að skjóta á þá í leikskránni. Þetta er slagur sem þú getur ekki unnið. Það eru 75.000 stuðningsmenn á vellinum en hann er einn. Hann getur sagt hvað sem hann vill í leikskránni en hann verður að velja orustur sínar betur,“ segir Matt Le Tissier.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu öll mörkin úr Meistaradeildinni í kvöld | Myndbönd Tuttugu mörk voru skoruð í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 31. október 2017 22:30 United komið áfram í 16-liða úrslit Manchester United er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á Benfica á Old Trafford í A-riðli í kvöld. United hefur unnið alla leiki sína í riðlinum. 31. október 2017 21:30 Mest lesið Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Sport Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þeirra stendur Fótbolti AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Fótbolti Fleiri fréttir Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira
Sjáðu öll mörkin úr Meistaradeildinni í kvöld | Myndbönd Tuttugu mörk voru skoruð í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 31. október 2017 22:30
United komið áfram í 16-liða úrslit Manchester United er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á Benfica á Old Trafford í A-riðli í kvöld. United hefur unnið alla leiki sína í riðlinum. 31. október 2017 21:30