Hetja Arsenal í gærkvöldi var ekki fæddur þegar Wenger tók við liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2017 07:30 Leikmenn Arsenal fagna Eddie Nketiah í gærkvöldi. Vísir/Getty
Edward Nketiah kom inná sem varamaður hjá Arsenal, tryggði liðinu sigur og sæti í átta liða úrslitum enska deildabikarsins og endurskrifaði söguna í leiðinni. B-deildarlið Norwich komst í 1-0 með marki Josh Murphy á 34. mínútu og þannig var staðan þar til að Arsene Wenger skipti Edward Nketiah inná fyrir Reiss Nelson á 85. mínútu. Edward Nketiah skoraði aðeins fimmtán sekúndum eftir að hann kom inná og tryggði Arsenal framlengingu. Hann skoraði síðan sigurmarkið á sjöttu mínútu í framlenginguni þegar hann skallaði inn hornspyrnu Mohamed Elneny. Edward Nketiah er fæddur 30. maí 1999 og er því átján ára síðan í vor. Með því að skora í gærkvöldi skrifaði hann nýjan kafla í stjórasögu Arsene Wenger hjá Arsenal eins og sjá má hér fyrir neðan.1 - Eddie Nketiah (born 30/05/99) is the first player born after Arsene Wenger was appointed @Arsenal manager to score for the club. Youth. — OptaJoe (@OptaJoe) October 24, 2017 Arsene Wenger varð formlega knattspyrnustjóri Arsenal 1. október 1996 en hann kom þangað frá Japan þar sem að hann hafði stýrt liði Nagoya Grampus. Edward Nketiah var aðeins búinn að spila einn annan leik fyrir Arsenal en hann kom inná á 89. mínútu í 4-2 sigri á BATE Borisov í Evrópudeildinni 28. september síðastliðinn. Edward Nketiah er frá London. Hann byrjaði feril sinn hjá Chelsea en missti sæti sitt þegar hann var fjórtán ára. Það var árið 2015 og hann gekk þá til liðs við Arsenal. Hann hefur síðan þroskast og dafnað og spilað bæði fyrir 18 ára og 19 ára landslið Englands.Edward Nketiah's record for Arsenal: Appearances: 2 Goals: 2 Dream start. pic.twitter.com/WpFcFbL5PK — Squawka Football (@Squawka) October 24, 20173️⃣️5️⃣️ minutes 2️⃣️ goals 1️⃣️ night to remember@EddieNketiah9pic.twitter.com/dovg7A2cqN — Arsenal FC (@Arsenal) October 25, 2017So what made you bring @EddieNketiah9 on, boss?#AFCvNCFCpic.twitter.com/4PsHlIIYCq — Arsenal FC (@Arsenal) October 25, 2017
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira