Norðmenn hyggjast afglæpavæða fíkniefnaneyslu Atli Ísleifsson skrifar 14. desember 2017 09:03 Fíkniefnavandinn er mikill í Noregi og er áætlað að um 260 manns að meðaltali hafi látið lífið vegna ofneyslu á hverju ári á síðustu árum. Vísir/Getty
Meirihluti flokka á norska þinginu hafa náð saman um að afglæpavæða fíkniefnaneyslu í landinu. Þannig eigi ekki að refsa og dæma fólk í neyslu heldur að bjóða þeim aðstoð við að losna undan fíkninni. Frá þessu var greint í norskum fjölmiðlum í gær en Verkamannaflokkurinn, Hægriflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og frjálslyndi flokkurinn Venstre standa að baki standa að baki samkomulaginu. Þetta er fyrsta skrefið í átt að nýrri stefnu norskra stjórnvalda í fíkniefnamálum þar sem ábyrgð á þeim vanda sem fylgja fíkniefnaneyslu fólks færist frá dómskerfinu og til heilbrigðiskerfisins. Fíkniefnavandinn er mikill í Noregi og er áætlað að um 260 manns að meðaltali hafi látið lífið vegna ofneyslu á hverju ári á síðustu árum.Breytt áhersla lögreglu Með breytingunni er hugsunin sú að fleiri fái hjálp við fíkninni og að lögregla eigi að leggja áherslu á að ná til þeirra sem selja, framleiða og dreifa efnunum. Bent Høie, ráðherra lýðheilsumála í Noregi, hefur áður nefnt Portúgal sem gott dæmi um land þar sem hægt er að ná árangri þegar ábyrgðin er færð frá dómskerfinu til heilbrigðiskerfisins, auk aukinnar áherslu á forvarnir. Fíkniefnaneysla var afglæpavædd í Portúgal árið 2001.Ekki lögleiðing Sérstök sendinefnd á vegum félagsmálanefnd norska Stórþingsins mun ferðast til Portúgals í febrúar til að kynnast nálgun Portúgala betur. Afglæpavæðing fíkniefnaneyslu er frábrugðin lögleiðingu fíkniefna að því leyti að fíkniefni eru enn ólögleg, en að fólk í neyslu og þeir sem bera smærri skammta af fíkniefnum ætlaða til einkaneyslu hafa ekki gerst brotlegir við lög og geta gengist undir meðferðarúrræði í stað þess að hljóta dóm.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira