Lögregluhundur réðst á saklausa konu Samúel Karl Ólason skrifar 8. desember 2017 12:00 Í lögsókn Collins segir að Gabe hafi ekki hlýtt minnst tíu skipunum um að sleppa takinu á henni.
Þegar hin 52 ára gamla Desiree Collins fór út með ruslið snemma morguns í september átti hún ekki von á því að verða fyrir árás lögregluhunds. Sú var þau raunin og hefur hún nú höfðað mál gegn lögreglunni í St. Paul í Minnesota. Hundurinn Gabe var á ferð með lögregluþjónum sem voru að leita innbrotsþjófa þegar þeir römbuðu á Collins við ruslagám. Myndband sem hefur verið gert opinbert vegna lögsóknarinnar sýnir árásina og hvernig Gabe sökkti tönnum sínum í handlegg Collins. Sjá má hvernig Gabe rífur Collins til jarðarinnar og hvernig lögregluþjónar reyndu að aðstoða hana. Eftir um 30 sekúndur sleppti Gabe takinu. „Hvað gerði ég honum?“ spurði Collins og svarið var: „Ekkert. Bara á röngum stað á röngum tíma.“ Hún hlaut sár á vinstri fót sinn og nokkur sár á hægri hendina.Lögmenn Collins segja það þó ekki vera rétt. Þeir segja sökina vera umsjónarmanns Gabe, Thaddeus Schmidt. Í lögsókn Collins segir að Gabe hafi ekki hlýtt minnst tíu skipunum um að sleppa takinu á henni. „Það sem við höfum hér er að algerlega saklaus kona var að fara út með ruslið og K-9 (heiti lögregluhunda í Bandaríkjunum) var ekki stýrt. Þetta hefði aldrei átt að gerast,“ sagði lögmaðurinn Andrew Noel við Star Tribune. Yfirmaður lögreglunnar í St. Paul sendi yfirlýsingu til blaðsins þar sem hann sagði að um hræðilegt slys hafi verið að ræða sem hefði aldrei átt að gerast. „Mér þykir leitt að þetta hafi gerst og hún hafi slasast. Sem lögregludeild óskum við þess að við gætum farið aftur í tíma og gert hlutina öðruvísi. Því miður getum við það ekki. Það sem við getum gert er að biðjast afsökunar og taka ábyrgð. Að læra af atvikinu svo við getum komið í veg fyrir að þetta geti komið fyrir einhvern annan,“ sagði Todd Axtell. Schmidt var vikið úr starfi í einn dag fyrir að missa Gabe úr augsýn og að tilkynna ekki veru hans á svæðinu.Samkvæmt frétt Washington Post greiddi sama lögregluembætti tvær milljónir dala í skaðabætur í mars. Það var vegna máls sem maður höfðaði gegn lögreglunni eftir að hann var bitinn af lögregluhundi. Í mars í fyrra greiddi lögreglan einnig annarri konu bætur eftir að hún var bitin af hundi í bakgarði sínum.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Ráðherra með „fráleita hótun“ Innlent Fleiri fréttir R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Sjá meira