Messan um Gylfa: Unsworth ætlaði að vera harður við Gylfa en Gylfi vinnur alltaf Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2017 10:30
Guðmundur Benediktsson og félagar í Messunni voru ánægðir með íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson um helgina en Gylfi lagði þá upp jöfnunarmark Everton á móti Crystal Palace. Þetta var fyrsta stoðsending Gylfa í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Ríkharður Daðason og Reynir Leósson voru gestir Gumma Ben að þessu sinni og þeir sjá jákvæða þróun í sambandi Gylfa og knattspyrnustjórans David Unsworth sem tók við liðinu tímabundið á meðan Everton leitaði af eftirmanni Ronald Koeman. „Við erum ennþá að bíða eftir því að Gylfi fái stjóra og við erum með David Unsworth þarna ennþá. Það er klárt mál að þeir eru að leita að réttum manni. Ég er allavega ánægður með að þeir séu ekki tilbúnir að taka hvað sem er,“ sagði Guðmundur Benediktsson. „Það var jákvætt fyrir Gylfa eftir landsleikjahlé, þegar hann er búinn að vera í burtu í tíu daga, að hann fær að spila í 90 mínútur í sinni upphaldsstöðu,“ sagði Ríkharður Daðason en fékk þá smá athugasemd frá Reyni Leóssyni. „Hann færði hann reyndar í seinni hálfleik út á vinstri vænginn þegar stjórinn gerir breytingu í hálfleik,“ sagði Reynir. Ríkharður leggur samt áherslu á það að sambandið við stjórann sé að lagast. „Rooney situr á bekknum allan tímann. Gylfi fékk hrós fyrir vinnusemina og vinnuframlagið eins og hann gerir alltaf. Hann hrósaði stjóranum á móti og það er eins og sambandið sé að þroskast og þróast. Unsworth er að sjá hvað okkar maður getur,“ sagði Ríkharður. „Ég held að Gylfi vinni alltaf. Þegar stjórarnir fara að kynnast honum. Það er aldrei neitt vesen á honum, hann leggur sig alltaf fram og hann er hinn fullkomni atvinnumaður. Þá getur ekki annað en tekið hann inn. Hann ætlaði að vera harður við Gylfa í byrjun og setja dýrasta leikmanninn til hliðar en hann er kominn til baka úr þeirri ákvörðun,“ sagði Reynir. Guðmundur, Reynir og Ríkharður ræddu stöðu Gylfa og má sjá allt innslagið hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira