Cantona: Elska Mourinho en vil sjá United liðið spila meira eins og lið Guardiola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2017 15:00 Eric Cantona. Vísir/Getty
Eric Cantona er goðsögn hjá Manchester United eftir fimm ótrúleg ár hjá félaginu frá 1992 til 1997. Hann vann fjóra meistaratitla og tvo bikarmeistaratitla á þessum fimm tímabilum. Hann er ánægður með knattspyrnustjóra félagsins í dag en vill þó sjá Manchester United liðið spila skemmtilegri fótbolta. Cantona lýsir knattspyrnustjóranum Jose Mourinho sem sigurvegara sem haldi alltaf áfram að vinna. „Hann er að spila varnarsinnaðan fótbolta sem er ekki einkennismerki Manchester United,“ sagði Eric Cantona í viðtali við útvarp BBC. „Manchester United er eins og Barcelona. Ég elska Mourinho. Ég er hrifinn af hans persónutöfrum og hann er mjög klár. Hann setur alla pressuna á sig sjálfan. Ég elska manninn en ég elska Guardiola líka,“ sagði Cantona. „Þeir eru báðir frábærir en ég vil frekar sjá sóknarfótbolta og meiri skapandi fótbolta. Ég reyndi að spila þannig allan minn feril,“ sagði Cantona. Manchester United er átta stigum á eftir toppliði Manchester City en City-liðið hefur unnið sautján leiki í röð í öllum keppnum. United liðið hefur skorað ellefu mörkum færra. „United er mitt félag. Félagið er í mínu blóði en þegar ég horfi á fótbolta í dag þá vil ég sjá meiri skapandi fótbolta,“ sagði Cantona. „Ég horfi á lið eins og Barcelona eða Real Madrid liðið hans [Zinedine] Zidane þar sem leikmenn eins [Luka] Modric eða [Toni] Kroos eru heilinn á bak við leik liðsins,“ sagði Eric Cantona.
Enski boltinn Mest lesið Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enski boltinn Heimsmeistarar Chelsea lögðu Leverkusen í æfingaleik Fótbolti Njarðvíkingar á toppi Lengjudeildarinnar Fótbolti Celtics festa þjálfarann í sessi Körfubolti Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Körfubolti „Þarf ekkert að ræða við dómarann enda norskan farin að ryðga“ Sport Fyrsti kvendómarinn í bandaríska hafnaboltanum Sport Axel leiðir að öðrum degi loknum Golf Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti