Klopp: Ég tek hundrað prósent ábyrgð á spilamennsku Moreno Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2017 23:00 Alberto Moreno fær orð í eyra frá Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Alberto Moreno, bakvörður Liverpool, átti ekki góðan leik á móti Sevilla í Meistaradeildinni í vikunni þar sem Liverpool missti 3-0 forystu niður í 3-3 jafntefli. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, tók fulla ábyrgð á frammistöðu Spánverjans þegar hann hitti enska blaðamenn í dag en Klopp var þá að ræða leik Liverpool og Chelsea sem fram fer á morgun. Moreno fékk meðal dæmda á sig klaufalega vítaspyrnu í leiknum en hann var þarna að mæta sínu gamla félagi. Liverpool liðið var með unnin leik en missti öll tök í seinni hálfleik þar sem Sevilla menn skoruðu þrjú mörk. „Ég talaði að sjálfsögðu við Alberto. Ég er mjög ánægður með formið hans og ég er ánægður með hans spilamennsku,“ sagði Jürgen Klopp en spænski bakvörðurinn hefur átt endurnýjun lífdaga á Anfield á þessu tímabili. „Ég veit vel að þetta var ekki einn af hans bestu leikjum og það er á mína ábyrgð. Ég hefði getað haft þetta öðruvísi og svo var þetta erfitt fyrir hann í þessum kringumstæðum í Sevilla. Allir voru að tala við hann eins og hann væri hluti af fjölskyldunni þeirra,“ sagði Klopp. „Ég hefði átt að hugsa betur um uppstillinguna eða gera breytingu fyrr. Þetta var ekki leikmanninum sjálfum að kenna því ég tek hundrað prósent ábyrgð á þessu,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira