Dönsk hjón keyptu nýfætt barn í Póllandi á 750 evrur Atli Ísleifsson skrifar 29. nóvember 2017 15:41 Lögregla komst á sporið eftir að ábending barst frá pólskum yfirvöldum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Dönsk hjón keyptu nýfæddan dreng í Póllandi án aðkomu ættleiðingarþjónustu árið 2014 og lugu að yfirvöldum til að barnið fengi danska kennitölu. Hjónin greiddu móður drengsins alls 750 evrur fyrir drenginn, eða um 90 þúsund krónur á núvirði.Danska ríkisútvarpið greinir frá málinu í dag en hjónin viðurkenndu gjörðir sínar fyrir dómara í Sønderborg. Konan segir að hún hafi auglýst á netinu eftir konu sem sæi ekki fram á að geta séð fyrir barninu sínu og væri reiðubúin að gefa það til ættleiðingar. Pólsk kona svaraði auglýsingunni, en sú var barnshafandi og krafðist fyrst 100 þúsund danskra króna fyrir drenginn, um 1,6 milljónir króna. Dönsku hjónin vildu hins vegar ekki samþykkja að greiða slíka fjárhæð og samþykktu loks að greiða móðurinni 750 evrur.Fengu fæðingarvottorð í Hollandi Þegar barnið var komið í heiminn ferðuðust hjónin frá Danmörku til Póllands til að sækja það. Maðurinn á fjölskyldu í Hollandi og greindu þau dönskum yfirvöldum frá því að barnið hafi fæðst í Hollandi í einni heimsókn þeirra þangað. Parinu tókst að fá hollensk yfirvöld til að gefa út fæðingarvottorð og með það í höndunum tókst þeim að fá danska kennitölu fyrir drenginn. Lögregla komst á sporið eftir að ábending barst frá pólskum yfirvöldum, en líffræðileg móðir drengsins hafði greint lögreglu þar í landi frá málinu. Barnið er nú þriggja ára gamalt og býr enn hjá dönsku hjónunum sem búa á Norður-Jótlandi. Í dómsgöngum kemur fram að barnið hafi þrifist vel hjá hjónunum.Skilorðsbundið fangelsi Konan viðurkenndi fyrir dómara að hafa gefið falskar upplýsingar til yfirvalda um barnið til að það fengi danska kennitölu. Saksóknarar kröfðust þess að hjónin yrðu dæmd fyrir brot gegn lögum um ættleiðingar, en þeim ákærulið var vísað frá dómi. Dómurinn sakfelldi hjónin hins vegar fyrir að hafa gefið yfirvöldum falskar upplýsingar um barnið og voru þau dæmd í tuttugu daga skilorðsbundið fangelsi og fjörutíu tíma samfélagsþjónustu. Ekki er útilokað að ákæruvaldið muni áfrýja dómnum.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk við Fairford Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira