200 handteknir vegna spillingar í Sádi-Arabíu Samúel Karl Ólason skrifar 9. nóvember 2017 16:49 Hinn 32 ára gamli Mohammed bin Salmann, nýr krónprins Sádi-Arabíu. Vísir/AFP
Yfirvöld i Sádi-Arabíu hafa handtekið 201 vegna spillingarrannsóknar og segja að rúmlega hundrað milljarðar dala af opinberu fé hafi endað í vasa óprúttinna einstaklinga vegna spillingar á undanförnum áratugum. Þetta kom fram í yfirlýsingu dómsmálaráðherra konungsríkisins í dag. Um 1.700 bankareikningar hafa verið frystir af yfirvöldum landsins. Mun fleiri hafa verið handteknir en áður hafði verið talið samkvæmt frétt Guardian. Fyrstu fréttir af handtökunum bárust á laugardaginn eftir að ellefu prinsar og 38 embættismenn og viðskiptajöfrar voru handteknir. Þeir eru í haldi yfirvalda á fimm stjörnu hótelum víða um landið. Gagnrýnendur segja að spillingarrannsóknin sé í rauninni spilling. Með handtökunum sé hinn 32 ára gamli Mohammed bin Salmann, nýr krónprins Sádi-Arabíu að tryggja stöðu sína og losa sig við mögulega andstæðinga. Salmann leiðir rannsóknina í gegnum nýstofnaða rannsóknarnefnd. Meðal þeirra sem hafa verið handteknir eru tveir synir fyrrverandi konungsins Abdullah. Annar þeirra heitir Miteb bin Abdullah og var hann, þar til á laugardaginn, yfirmaður þjóðvarðsliðs Sádi-Arabíu. Hann keppti eitt sinn um krúnuna og var mótfallinn því að Salmann yrði gerður að krónprinsi.
Tengdar fréttir Hitnar í köldu stríði Írana og Sádi-Araba Sádi-Arabar segja Íransstjórn nánast lýsa yfir stríði með stuðningi sínum við uppreisnarmenn í Jemen og Líbanon. Afsögn forsætisráðherra Líbanons talin afleiðing þrýstings frá Sádi-Aröbum. Atburðir síðustu daga þykja líklegir 8. nóvember 2017 11:00 Mest lesið Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Fleiri fréttir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Sjá meira
Hitnar í köldu stríði Írana og Sádi-Araba Sádi-Arabar segja Íransstjórn nánast lýsa yfir stríði með stuðningi sínum við uppreisnarmenn í Jemen og Líbanon. Afsögn forsætisráðherra Líbanons talin afleiðing þrýstings frá Sádi-Aröbum. Atburðir síðustu daga þykja líklegir 8. nóvember 2017 11:00