Ítalskur mafíósi fór fram á að dóttir sín yrði myrt Atli Ísleifsson skrifar 31. október 2017 10:34 Giuseppe "Pino“ Scaduto í lögreglufylgd árið 2008. Vísir/EPA
Ítalskur mafíósi á að hafa farið fram á að dóttir sín yrði myrt, sökum þess að hún hafi átt í sambandi við lögreglumann. Pino Scaduto, yfirmaður Bagheria-mafíunnar á Sikiley, kenndi dóttur sinni og sambandi hennar og háttsetts lögreglumanns um að hann hafi verið handtekinn, dæmdur og þurft að afplána dóm í fangelsi. Við rannsókn á bréfasendingum Scaduto úr fangelsinu fundu lögreglumenn vísanir í sérstaka „gjöf“ sem hann vildi gefa dóttur sinni.Guardian greinir frá því að lögregla á Ítalíu segi Scaduto, sem var sleppt úr fangelsi í apríl síðastliðinn, hafa beðið son sinn um að myrða systur sína. „Systir þín er orðin uppljóstrari,“ á Scaduto að hafa sagt við soninn. Sonurinn, sem hefur verið ákærður fyrir morð í öðru máli, var hins vegar ekki viljugur að fara að skipunum föður síns. „Ég vil ekki gera það. Ef þú vilt gera þetta, þá verður þú að sjá til þess sjálfur. Af hverju á ég að þurfa að fást við þetta vandamál. Ég er þrítugur,“ sagði sonurinn í samtali við föður sinn sem lögregla hleraði. Scaduto leitaði þá til annars manns til að fá hann til að myrða dótturina, en sá neitaði honum einnig og sagði að um fjölskyldumál vera að ræða sem hann vildi ekki koma nálægt. „Í dag höfum við handtekið mafíuleiðtoga sem vildi drepa dóttur sína þar sem hún átti í sambandi við háttsettan ítalskan lögreglumann,“ sagði ítalski utanríkisráðherrann Angelino Alfano í gær. Scaduto var handtekinn ásamt fimmtán öðrum liðsmönnum Bagheria-mafíunnar til viðbótar.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Fleiri fréttir Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Sjá meira