Stjóralausir Leicester-menn unnu fyrsta sigurinn í tvo mánuði Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. október 2017 16:08 Okazaki, hér til vinstri, skoraði sigurmark Leicester eftir góðan undirbúning frá Mahrez. Vísir/Getty
Leicester sótti þrjú stig til Wales í 2-1 sigri gegn Swansea í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Craig Shakespeare var sagt upp störfum sem þjálfari liðsins á dögunum. Leicester var aðeins búið að vinna einn leik af átta fyrir leiki dagsins og leika sex leiki í röð án sigurs þegar ákvörðun var tekin að reka Shakespeare fyrr í vikunni. Federico Fernandez, miðvörður Swansea, varð fyrir því óláni að koma gestunum yfir með sjálfsmarki en í upphafi seinni hálfleiks bætti Shinji Okazaki við marki fyrir Leicester sem reyndist vera sigurmarkið. Alfie Mawson náði að minnka muninn fyrir heimamenn en lengra komust þeir ekki. Á sama tíma vann Newcastle 1-0 sigur gegn Crystal Palace á heimavelli en spænski miðjumaðurinn Mikel Merino skoraði eina mark leiksins undir lok venjulegs leiktíma. Var þetta fyrsta mark hans fyrir félagið en félagið gekk nýlega frá kaupunum á Merino eftir góða frammistöðu í fyrstu leikjum tímabilsins sem lánsmaður frá Dortmund í Þýskalandi. Þá sótti Bournemouth þrjú stig til Stoke í 2-1 sigri í fallbaráttuslag í dag en þetta var aðeins annar sigur Bournemouth á tímabilinu og sá fyrsti á útivelli. Andrew Surman og Junior Stanislas komu Bournemouth yfir með tveimur mörkum á stuttum tíma í fyrri hálfleik en Mame Diouf náði aðeins að laga stöðuna fyrir Stoke sem situr í fallsæti með átta stig eftir leikinn.
Enski boltinn Mest lesið West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Verstappen tikkar af golulistanum Formúla 1 Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport Emin enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli Sport „Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum“ Sport Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Fótbolti Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von Handbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Fleiri fréttir West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Stuðningsmaður Newcastle tryggði óvæntasta sigur helgarinnar gegn Sunderland Guardiola ætlar að skella sér í frí „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Marmoush skaut City áfram í bikarnum í fjarveru Haaland Garnacho í aðalhlutverki í sigri á Hollywood-liðinu Skrifar undir nýjan samning við Liverpool Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Wirtz snúi aftur gegn Wolves „Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Sjá meira