Leikarinn Robert Guillaume er látinn Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2017 09:52 Robert Guillaume varð 89 ára. Vísir/Getty
Bandaríski leikarinn Robert Guillaume er látinn, 89 ára að aldri. Guillaume er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum Soap og Benson og þá gerði hann jafnframt garðinn frægan þegar hann ljáði apanum Rafiki rödd sína í Disneymyndinni Konungur ljónanna. Guillaume lést í Los Angeles í gær en hann hafði glímt við blöðruhálskrabbamein. Guillaume fór með hlutverk þjónsins Benson DuBois í þáttaröðinni Soap sem hóf göngu sína árið 1977. Tveimur árum síðar hófst gerð sérstakra þátta, Benson, um téðan þjón en síðasta þáttaröðin var sýnd árið 1986.Apinn Rafiki í Konungi ljónanna.Á ferli sínum vann Guillaume til tveggja Emmy-verðlauna, fyrst árið 1979 fyrir hlutverk sitt í Soap og svo aftur árið 1985 fyrir frammistöðu sína í þáttunum Benson. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira