Ein frægasta knattspyrnukona heims rekin úr Disney-garðinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2017 10:00 Alex Morgan. Vísir/Getty
Bandaríski landsliðsframherjinn Alex Morgan skapaði mikinn usla í skemmtigarðinum Disney World ásamt tveimur liðsfélögum sínum í Orlando City liðinu. Alex Morgan er aðalframherji bandaríska landsliðsins og ein af allra bestu knattspyrnukonum heims. Hún leikur nú í bandarísku atvinnumanndeildinni en hjálpaði franska liðinu Lyon að vinna Meistaradeildina síðasta vor. Morgan var rekin út úr Disney's Epcot Centre af lögreglu á sunnudaginn eftir að hafa verið með læti á bar á svæðinu. Bandarískir fjölmiðlar komust á snoðir um þetta í gær. Upphafið af öllu saman var þegar vinur Alex Morgan, Giles Barnes, ruddist framfyrir í röðinni á bar og í framhaldið hófst mikið rifildi sem stigmagnaðist. Morgan var öskrandi og æpandi og lét öllum illum látum þegar lögreglan var að fjarlægja hana og vini hennar í Orlando City liðinu af svæðinu. Hin 28 ára gamla Alex Morgan var í annarlegu ástandi og tilkynnti nærstöddum meðal annars að svona gætu þau ekki farið með hana því hún þekkti menn í sérsveitinni. Alex Morgan hefur skorað 77 mörk í 130 landsleikjum fyrir Bandaríkin og hún er líka fræg fyrir að hafa verið tvisvar sinnum fyrirsæta í sundfataútgáfu Sports Illustrated. Hún hefur því verið andlit bandaríska fótboltalandsliðsins í dágóðan tíma og hefur þetta mál því vakið talsverða athygli í Bandaríkjunum.Vísir/Getty
Fótbolti Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira