Þurfa að endurskoða nauðgunarmál tíu ára móður Samúel Karl Ólason skrifar 13. september 2017 10:18 Upp komst um óléttu stúlkunnar í júlí þegar hún kvartaði yfir verkjum í maga og foreldrar hennar fluttu hana á sjúkrahús. Vísir/Getty
Lögreglan í Indlandi hefur þurft að að enduropna mál tíu ára stúlku sem var nauðgað. Stúlkan varð ólétt og hæstiréttur Indlands neitaði beiðni fjölskyldu hennar um að hún fengi að fara í fóstureyðingu. Stúlkunni var ekki sagt að hún hefði verið ólétt, heldur sagði fjölskylda hennar að hún væri með stein í maganum. Stúlkan sjálf mun hafa sakað frænda sinn um að nauðga sér margsinnis en DNA sýni sýna fram á að hann sé ekki faðirinn. Hann var ákærður og er sagður hafa viðurkennt að hafa nauðgað stúlkunni en samkvæmt frétt BBC grunar lögregluna nú að fleiri hafi nauðgað henni. Lögregluþjónar ræddu aftur við fjölskylduna í gær og einnig stendur til að kanna DNA sýnin aftur og ganga úr skugga að engin mistök hafi verið gerð. Upp komst um óléttu stúlkunnar í júlí þegar hún kvartaði yfir verkjum í maga og foreldrar hennar fluttu hana á sjúkrahús. Dómstólar neituðu að leyfa fjölskyldu hennar að fara með hana í fóstureyðingu þar sem óléttan var komin of langt á veg. Hún eignaðist barnið í síðasta mánuði en fjölskylda hennar vill ekkert með það hafa. Barnið verður boðið til ættleiðingar. Ólöglegt er að eyða fóstrum eftir 20 vikna meðgöngu, nema læknar séu sannfærðir um að líf móðurinnar sé í hættu. BBC tekur þó fram að á undanförnum árum hafi dómstólar leyft það í nokkrum tilvikum og þá sérstaklega í tilfellum barna sem hafi verið nauðgað. Tvö slík tilfelli hafa átt sér stað á þessu ári. Um er að ræða þrettán ára stúlku og aðra tíu ára stúlku sem var nauðgað af stjúpföður sínum.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Sjá meira