Coutinho vill ekki ræða mögulega sölu sína til Barcelona Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. júní 2017 18:00 Philippe Coutinho kom að 20 mörkum í ensku úrvalsdeildinni með beinum hætti. vísir/getty
Philippe Coutinho hefur ekkert viljað ræða mögulega sölu sína til Barcelona síðustu daga en brasilískir blaðamenn hafa ítrekað reynt að fá hann til að tjá sig um hvar hann spilar næsta vetur. Coutinho hefur undanfarna daga verið með brasilíska landsliðinu en hefur forðast allar spurningar um framtíð sína. Hann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona en það var vissulega áður en þjálfaraskipti urðu á Nývangi. „Það er flókið að tala um þetta. Ég er með samning við Liverpool og hann er langur. Ég einbeiti mér bara að landsliðinu og því sem er að gerast núna,“ lét Coutinho hafa eftir sér en fleiri voru ekki þau orð. Coutinho hefur á síðustu misserum stimplað sig inn sem einn besta sóknarmann ensku úrvalsdeildarinnar en hann skoraði þrettán deildarmörk og lagði upp önnur sjö í 31 leik fyrir Liverpool á síðustu leiktíð. Þessi 25 ára fastamaður í brasilíska landsliðinu kom til Liverpool árið 2013 frá Inter en svo virðist sem það gæti orðið alvöru barátta hjá Liverpool að halda honum í sumar.
Enski boltinn Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Fleiri fréttir Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Sjá meira