Vaknaðir af draumi og fastir í martröð 18. febrúar 2017 13:00 Leicester liðið Vísir/Getty
Auðvitað bjóst enginn við að Leicester myndi endurtaka afrekið frá því í fyrra. Stóru liðin styrktu sig gríðarlega í sumar á meðan meistararnir seldu sinn langbesta mann, N´Golo Kante. Það bjóst heldur enginn við að þeir myndu falla. En staðan er orðin þannig að nú eru meistararnir á góðri leið með það. Hver er ástæðan fyrir falli meistaranna? Stórt er spurt. Stærsta ástæðan er auðvitað brotthvarf Kante, sem fór til Chelsea. Það var stundum sagt að með Leicester spiluðu 12, því Kante er á við tvo. Hann verndaði meðalmennina Robert Huth og Wes Morgan svo vel að þeir litu út fyrir að vera stórkostlegir allt síðasta tímabil. Varnarleikurinn hefur verið í molum frá því Kante hvarf á brott, liðið hefur fengið á sig 43 mörk það sem af er, en allt tímabilið í fyrra fékk liðið á sig 36. Claudio Ranieri, stjóri Leicester, keypti þrjá menn til að reyna að fylla skarð Kante, það hefur ekkert gengið. En Kante var ekki bara frábær í varnarvinnunni, hann leyfði líka mönnum frammá við að fá aukið svigrúm. Þar voru þeir Jamie Vardy og Riyad Mahrez og samleikur þeirra var miklu meira en bara augnakonfekt. Það var eins og þeir gætu ekki gert nein mistök – ekki frekar en liðið sjálft. Á þessu tímabili er sagan öðruvísi. Vardy hefur ekki átt skot á markið síðan 17. desember og þeir félagar spiluðu átta leiki í röð þar sem þeir gáfu hvor á annan tvisvar sinnum. Tvisvar sinnum. Það er auðvitað með ólíkindum. Mahrez daðraði við að fara í sumar eins og Vardy en hvorugur var seldur. Trúlega voru þeir farnir til stærri liða í höfðinu því hvorugur hefur verið svipur hjá sjón, ekki frekar en liðið sjálft. Einnig verður að segjast að það vilja allir vinna meistarana. Og leikskipulag Leicester var nú ekki ýkja beysið. Ranieri lét sitt lið bíða til baka, lét mótherjana koma á sitt lið. Þar var Kante. Hann vann boltann, sendi á Mahrez sem kom Vardy í gegn sem skoraði. Þetta var ekki flókin uppskrift en hún svínvirkaði. Núna er öldin önnur. Leicester er eina liðið sem hefur ekki skorað deildarmark á árinu 2017 og þá eru allar deildir teknar með í Englandi. Og það er verið að tala um sjálfa Englandsmeistarana. Ranieri hefur einnig verið að hringla með liðið sem er aldrei góð ávísun á gott gengi. Hann gerði 33 breytingar allt tímabilið í fyrra en í ár hefur hann þegar gert 52 breytingar. Hann notaðist við 23 leikmenn allt síðasta tímabil en nú þegar hafa 24 leikmenn stigið inn á völlinn fyrir liðið. Vinni Hull, Crystal Palace og Sunderland sína leiki um næstu helgi verður Leicester í fallsæti þegar liðið mætir Liverpool, þann 27. febrúar. Auðvitað er Sunderland langlíklegasta liðið til að falla, sé miðað við spilamennsku þess að undanförnu. Hull og Swansea eru með nýja stjóra sem eru að gera góða hluti og Crystal Palace og Middlesborough eru að kroppa í stig hér og þar. Eina liðið í fallbaráttunni sem er að ströggla við að ná í stig er Leicester. Síðasti sigurleikur liðsins kom á gamlársdag. Sama dag kom einnig síðasta markið þeirra. Manchester City er eina liðið sem hefur fallið sem ríkjandi meistari, það var árið 1938. Auðvitað er ekki einn maður orsök þessa háa falls Leicester. Hvort aðrir leikmenn séu ekki að æfa af jafn miklu kappi og áður, séu sáttari við að fá feitari launaávísun eða hvort óákveðni Ranieris sé um að kenna er erfitt að svara. Eina sem er vitað er að Leicester, Englandsmeistararnir, eru á góðri leið með að falla úr deild þeirra bestu. Níu mánuðum eftir að draumi þeirra lauk eru þeir vaknaðir og eru fastir í martröð.
Mest lesið Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Segja hegðun Paragvæ til skammar Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Fleiri fréttir Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira